Framkvæmdaráð

Framkvæmdaráð og vísindaráð CarbFix verkefnisins vinna saman að því að uppfylla tilgang og markmið verkefnisins. Framkvæmdaráðið einbeitir sér fyrst og fremst að fjármögnun, stjórnun og framkvæmd verkefnisins. Framkvæmdaráðið skal tryggja gerð verkefnaáætlunar, að hún sé uppfærð reglulega og að verkefnisstjóri og vísindaráð fari yfir hana að lágmarki árlega. Verkefnaáætlunin skal sýna viðeigandi verkþætti og skal einnig innihalda ráðstöfunarfé, fjárhagsáætlun o.s.frv. og gefa skýra mynd af gangi verkefnisins. Framkvæmdaráðið þarf að gefa samþykki sitt fyrir öllu breytingum á eignarhlut samstarfsaðila í verkefninu. Fulltrúar í framkvæmdaráðinu bera ábyrgð á því að afla allrar þeirrar sérfræðiþekkingar sem þörf er á og er ekki að finna hjá meðlimum ráðsins og bera ábyrgð á gerð og viðhaldi vefsíðu fyrir verkefnið.

Jakob Sigurður Friðriksson

Jakob Sigurður Friðriksson - Formaður
Framkvæmdastjóri Framleiðslu og Sölu
Orkuveita Reykjavíkur
jakob.fridriksson (hjá) or.is

Juerg M. Matter

Juerg M. Matter
Vísindamaður
Jarðvísindastofnun Columbia háskóla
jmatter (hjá) ldeo.columbia.edu

Nánari upplýsingar
Umfjöllun

Andri Stefánsson

Andri Stefánsson
Sérfræðingur - Jarðefnafræði
Jarðvísindastofnun Háskólans
as (hjá) hi.is

Rit