Rannsóknir
Litið er á aðgerðir til að draga úr losun koltvísýrings (CO2) sem eina helstu áskorun þessarar aldar. Til þess að mæta henni hefur CarbFix verkefnið verið hannað þannig að sú tækni og þær aðferðir sem þar verða þróaðar við bindingu koltvísýrings í basalti geti nýst sem iðnaðarlausnir. Helstu þættir verkefnisins eru:
- Binding CO2 í basalti með því að dæla því niður í jarðlög á athafnasvæði Orkuveitu Reykjavíkur,
- Rannsóknir í tilraunastofum,
- Tilraunir með bindingu CO2 í svonefndum hvarfastokkum,
- Rannsóknir á kolsýruríku vatni sem unnt er að nýta sem náttúrulega hliðstæðu og
- Nýjustu reiknilíkön í jarðefnafræði.
Eitt af mikilvægustu markmiðum verkefnisins er að efla þann mannauð og þá sérfræðiþekkingu sem nauðsynleg er til að leggja lóð á vogaskálar í baráttunni við afleiðingar gróðurhúsaáhrifa í framtíðinni.
Rannsóknin inniheldur eftirfarandi verkþætti:
- Niðurdæling á CO2 í jarðlög í útjaðri jarðhitasvæðisins við Hellisheiðarvirkjun. Athafnasvæði Orkuveitu Reykjavíkur við Hellisheiðarvirkjun í Svínahrauni og Þrengslum er tilvalið til að stunda rannsóknir á möguleika þess að binda koltvísýring (CO2) varanlega í basalti sem steindina kalsíumkarbónat eða kalsít. Aflað hefur verið þekkingar á jarðhitasvæðinu í tengslum við byggingu virkjunarinnar, þar er nægt ferskvatn, koltvísýringur, hvarfgjarnt basalt, hentugur berggrunnur og búnaður sem nýtist við tilraunina.
- Rannsóknir í tilraunastofum. Áhersla verður lögð á að meta hvarfhraða basalts og útfellingahraða karbónata við niðurdælingu á koltvísýringi.
- Tilraunir með bindingu CO2 í hvarfastokkum. Hvarfastokkarnir verða notaðir til að fínstilla reiknilíkön á jarðefnafræði niðurdælingarsvæðisins. Ennfremur gætu þeir nýst sem iðnaðarlausnir við bindingu koltvísýrings.
- Rannsóknir á kolsýruríku vatni sem má nýta sem náttúrulega hliðstæðu við þá efnaferla sem munu eiga sér stað í jarðlögum við niðurdælingu CO2. Víða í náttúrunni eiga sér stað efnahvörf milli basalts og kolsýruríks vatns. Rannsóknir á þessum svæðum veita innsýn inn í hversu stöðug binding CO2 í basalti er til langs tíma.
- Líkangerð. Til að unnt sé að túlka niðurstöður rannsókna í tilraunastofum og úti í náttúrunni hefur verið ráðist í gerð reiknilíkans á jarðefnafræði niðurdælingarsvæðisins. Þetta er einnig gert til að spá fyrir um/hámarka þau efnahvörf og þá ferla sem munu eiga sér stað í jarðlögum við niðurdælingu á CO2.
Nánari upplýsingar um niðurstöður þessara verkefna er að finna á enska hluta verkefnisins