CarbFix verkefnið

Ein mikilvægasta áskorun aldarinnar er að ráðast í aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eins og koltvísýrings (CO2). Ein leið til að lækka varanlega styrk CO2 í andrúmslofti er myndun stöðugra, kolefnisríkra steinda í basalti.

CarbFix verkefnið miðar að því að kanna fýsileika slíkrar steindabindingar djúpt í berglögum í nágrenni Hellisheiðarvirkjunar. 

Meginmarkmið CarbFix verkefnisins eru þrjú:

  • Að auka skilning á því hvað verður um koltvísýring sem dælt er niður í berggrunninn til langs tíma litið.
  • Að þróa tækni til að binda koltvísýring varanlega í jarðlögum.
  • Að gefa út og miðla niðurstöðum rannsókna og tilrauna svo þær geti nýst sem víðast.

CarbFix verkefnið er einstakt að því leyti að það tengist beint rekstri jarðvarmavirkjunar. Koltvísýringur, sem kemur upp með jarðhitavökvanum og færi annars út í andrúmsloftið, er þannig bundinn í bergi í grennd virkjunarinnar og eykur þar með grænt gildi orkuframleiðslunnar. Koltvísýringur er um 0,42% útblásturs virkjunarinnar. Koltvísýringnum er ekki dælt sem lofttegund ofarlega í borholu, sem dælt er niður um. Með því að koltvísýringurinn leysist upp í vatninu – svipað og í sódavatni – er verulega dregið úr hættu á því að hann losni áður en hann binst í formi karbónat steinda í berggrunninum. Koltvísýringurinn binst jafnframt hraðar í berginu sé hann uppleystur í vatni. Þessi binding koltvísýrings í bergi er þekkt í náttúrunni og sést oft sem hvítar doppur eða holufyllingar í gosbergi.

CarbFix verkefninu var hleypt af stokkunum haustið 2007. Fjöldi vísindamanna hefur komið að verkefninu ásamt ríflega tugi doktorsnema sem hefur unnið eða er að vinna lokaverkefni sín í tengslum við verkefnið.

Þá hafa tvær stúdínur varið meistararitgerðir um hluta CarbFix verkefnisins. Fjöldi ritrýndra fræðigreina sem tengjast verkefninu hefur verið birtur á síðustu misserum. Niðurdæling á CO2 hófst í lok janúar 2012. Áður en niðurdælingin hófst höfðu vísinda- og tæknimenn unnið mikla vinnu við kenningasmíð, tilraunir á rannsóknastofum, líkanagerð og hönnun og smíði ferla og búnaðar.

CarbFix verkefnið er einstakt samstarf fyrirtækis og háskóla beggja vegna Atlantshafsins Samstarf af þessu tagi er mjög mikilvægt til að tilraunaverkefni eins og CarbFix geti þróast frá því að vera hugmynd yfir í raunverulegt verkefni. Verkþekking og verkvit tækni- og vísindamanna Orkuveitu Reykjavíkur og Verkfræðistofunnar Mannvits á þar stóran hluta að máli.

Orkuveita Reykjavíkur hefur yfir að ráða öllum búnaði, í þessu tilviki jarðhitavirkjun, rannsóknum og þróun auk tæknilegrar kunnáttu til að hanna, byggja og framkvæma niðurdælingu á CO2 í berglög. Þekkingin sem þarf til að skilja og meta örlög koltvísýringsins sem dælt er niður er á hinn bóginn að mestu hjá vísindafólki háskólanna. Það er okkar reynsla að allir samstarfsaðilar CarbFix verkefnisins hafi hagnast á samstarfinu. Reynslan hefur jafnframt sýnt okkur að traust vísindaþekking af hálfu fyrirtækisins er ekki síður nauðsynleg en verkvit af hálfu vísindamanna háskólanna til að hægt sé að reka tilraunaverkefni eins og CarbFix verkefnið.


Nánari upplýsingar um CarbFix verkefnið hér