CarbFix verkefnið

Ein mikilvægasta áskorun þessarar aldar er að ráðast í aðgerðir til að draga út losun koltvísýrings (CO2) sem er ein þeirra lofttegunda sem valda gróðurhúsaáhrifum.  Um þessar mundir fara fram prófanir á aðferðum til að fanga koltvísýring frá misumunandi uppsprettum og dæla honum djúpt niður í hentug berglög. Koltvísýringi, sem áður var bundinn í jarðlög, er þannig skilað til baka í stað þess að losa hann út í andrúmsloftið. Þessa tækni vonast menn til að geta nýtt sem mótvægisaðgerð við gróðurhúsaáhrif. Er horft til þess að niðurdæling á koltvísýringi í jarðlög á svæðum sem geta tekið við miklu magni og hafa verið valin af kostgæfni, geti haft jákvæð langtímaáhrif á umhverfið.

Við Hellisheiðarvirkjun er stefnt að því að beisla þann koltvísýring sem kemur upp úr jarðhitakerfinu og jarðgufunni, dæla honum aftur niður í basaltjarðlögin þar sem hann binst sem steindin kalsít í þúsundir ára. Fjölþjóðlegu rannsóknarverkefni, sem kallast CarbFix, var hleypt af stokkunum haustið 2007 til að takast á við þetta viðfangsefni og er áætlað að verkefnið standi yfir í a.m.k. næstu þrjú ár.