Gönguleið 9

Á topp Hengilsins, Vörðu-Skeggja (805 m.y.s.), liggja 5 leiðir sem sameinast ofar, upphafsstaðir eru í raun þrír. Frá Sleggjubeinsdal hefjast 2 leiðir, aðrar 2 frá Dyradal og ein leið frá Nesjavöllum.
Marardalur - Vörðu-Skeggi
Erfiðleikastig 3. 8,3 km (Frá upphafspunkti í Dyradal)
Smelltu á myndir til að stækka
Leiðarlýsing á prentvænu formi
(2,56Kb)
Erfið leið sem reynir nokkuð á úthald. Mjög brött leið í fyrstu. Leiðin hefst í Dyradal (Leið 1). Úr Marardal er gengið til suðurs um klettaskarð að vegpresti í gilinu, þar er vísað á Engidal/Sleggjubeinsskarð (Leið 4), við ætlum leiðina sem vísar á Vörðu-Skeggja. Frá vegprestinum er haldið beint af augum upp mjög bratta gróna hlíð til austurs, auðvelt er að fóta sig í brekkunni þrátt fyrir brattann. Á þessari leið er mesta hækkun tekin strax í fyrstu brekku um 3-400 metrar.

Útsýni er stórkostlegt til vesturs og fallegt að horfa niður í Engidal og Marardal. Slóðin þarna er fremur óljós, þetta er sennilega ein fáfarnasta leið á Hengilssvæðinu, en eins og á öðrum leiðum eru stikur mjög greinilegar.

Ofan hlíðar tekur við stór mosavaxin slétta þar sem Vörðu-Skeggi gnæfir yfir til norðurs.

Slóðin liggur yfir sléttuna og sveigir til suðurs þar sem krækt er upp með gilskorningi inn á mikla móbergssléttu sem teygir sig langa leið til suðurs. Haldið er að vegpresti beint framundan sem skiptir leiðum, önnur niður í Sleggjubeinsskarð (Leið 10), hin sem fylgt er áfram á Vörðu-Skeggja.