Gönguleið 8
Ölkelduháls - InnstidalurErfiðleikastig 2. 7,1 km.
Smelltu á myndir til að stækka
Leiðarlýsing á prentvænu formi
(2,24Kb)
Fjölbreytt leið fyrir alla fjölskylduna, hefst í urð og grjóti en endar í grösugum Innstadal. Frábært útsýni og upplagt að fara í heita lækinn í Innstadal. Frá Upplýsingatöflu nokkuð vestan Ölkelduhnúks liggur leiðin upp hlíðina til vesturs í átt að Kýrgilshnúk, frábært útsýni er yfir Kýrgil og Þverárdal, vert er að skoða Kýrgil sérstaklega. Eftir því sem ofar dregur opnast stórkostlegt útsýni yfir Þingvallavatn, Ölkelduháls og Grímsnes.

Slóðin liggur því næst hátt í hlíðunum ofan Hengladala með frábæru útsýni til suðurs yfir Ölfus og Hellisheiði, nær liðast Hengladalsáin um Miðdal og Fremstadal. Gengið er inn í Miðdal og svo um Þrengslin upp í Innstadal. Í Þrengslum skoppar áin í fossum og flúðum niður í Miðdal. Ofar í mynni Innstadals er farið yfir ána og hlíð Skarðsmýrarfjalls fylgt að vegpresti í hrauninu miðsvegar...

...í dalnum. Hér skiptast leiðir, önnur til norðurs (leið 11) á Vörðu-Skeggja, hin áfram til vesturs niður í Sleggjubeinsdal (Leið 2).