Gönguleið 7

Úlfljótsvatn - Hveragerði
Erfiðleikastig 2. 16,5 km.

Fjölbreytt útsýnisleið, auðveld en kallar á úthald.  Fluga er ágeng og því gott að hafa meðferðis flugnanet.  Í bleytu eru legghlífar æskilegar þar sem gengið er í kjarri og djúpu grasi.

Smelltu á myndir til að stækka

Leiðarlýsing á prentvænu formi (2,29Kb)



Frá Upplýsingatöflu við Úlfljótsvatn er fylgt vegaslóða til suðurs að Fossá. Þar sveigir slóðin upp með ánni. Gengið er um gott berjaland í nokkuð þéttu kjarri sem gisnar er komið er ofar í ásana.


Ofan ásanna er farið yfir Fossá og gengið yfir Selflatir að Grafningsréttum. Frá Selflötum er haldið upp á við á Dagmálafell með gott útsýni til allra átta, Þingvallavatn, Úlfljótsvatn, Grímsnes og Ingólfsfjall. Áfram er haldið eftir Efjumýrarhrygg í átt að Álút, létt en nokkuð löng ganga. Af Álút er stórfenglegt útsýni yfir Ölfus til Hveragerðis, Kamba og til Þingvallavatns.


Leiðin liggur nú um nokkuð bratta hlíð niður í Reykjadal. Þar er mjög virkt hverasvæði sem hefur breyst nokkuð í jarðskjálftanum 2008, margir nýjir hverir hafa myndast og allnokkuð jarðrask þar sem hlíðar í giljum hafa skriðið fram. Því þarf að fara varlega eins og reyndar á öllum hverasvæðum. Áfram er haldið upp hlíðina undir Dalskarðshnúk og í gegnum Dalskarð.


Úr skarðinu rétt ofan við Dalasel er gott útsýni yfir Klambragil og Molddalahnúka. Gengið er niður slakkann að vegpresti við Dalasel, þar skiptast leiðir, önnur liggur upp á Ölkelduháls (leið 3), hin sem við fylgjum niður í Klambragil. Þar er gott tækifæri til að baða sig í heita læknum, áður en haldið er áfram niður Rjúpnabrekkur til Hveragerðis. (Leið 5).