Gönguleið 6

Ölfusvatn - Ölkelduháls

Erfiðleikastig 2.   12,7 km. 

Smelltu á myndir til að stækka

Leiðarlýsing á prentvænu formi(2,28Kb)



Fjölbreytt og skemmtileg leið sem hentar öllum, hreint ævintýri fyrir börn og fullorðna að þræða gilið. Frá Upplýsingatöflu við afleggjarann að Ölfusvatni er haldið yfir Grafningsveginn upp með Ölfusvatnsánni, fluga getur verið ágeng hér. Gengið er um kjarri vaxið land norðan árinnar um 2 km, þar sem stikla eða vaða þarf yfir ána. Þá er haldið upp vegarslóða sem fylgir barmi Ölfusvatnsgljúfurs, Mælifell blasir við handan gljúfursins.


Slóðin heldur áfram um sléttlendi að vegpresti í Seltungum undir Hrómundartindi, hér skiptast leiðir önnur til vesturs að Ölkelduhnúki, hin sem við fylgjum til austurs liggur um grunnt árgil í sveig fyrir tindinn.


Þar tekur við stórfenglegur og ógleymanlegur hluti leiðarinnar. Undir austurhlíð Hrómundartinds er gengið inn í gilskorning sem þrengist og dýpkar því lengra sem farið er, gilið er svo þröngt að á köflum virðist sem veggirnir hvolfist yfir.


Eftir létt klifur í enda gilsins er komið upp við Kattartjarnir og gengið um hrjóstruga ása upp í grasi gróinn dal, meðfram Kattartjörn Efri og Álftatjörn. Þarna er frábært útsýni til Þingvallavatns. Gengið er með hlíðum Lakahnúks og Tjarnarhnúks að vegpresti við Ölkelduháls. Hér skiptast leiðir önnur niður til Dalasels og Klambragils (Leið 3). Hin sem við fylgjum er í raun hluti leiðar 3 að vegpresti undir Ölkelduhnúk og áfram að Upplýsingatöflu um 1 km vestar.