Gönguleið 5

Rjúpnabrekkur (Hveragerði) - Klambragil

Erfiðleikastig 2.   3 km. (3,8 km bætast við ef Ölkelduhálshring er bætt við).

Smelltu á myndir til að stækka

Leiðarlýsing á prentvænu formi (2,31Kb)



Þessi leið er auðveld, aðeins á fótinn og kjörin fyrir alla fjölskylduna. Börn hafa mjög gaman af þessari leið og þá sérstaklega heita pottinum. Frá Upplýsingatöflu efst í Reykjadal ofan Hveragerðis er haldið af stað til norðurs upp fallega ása og gilskorninga upp með Djúpagili og Reykjadalsá, á köflum utan í bröttum hlíðum.


Þessi slóð er mjög greinileg, líklega fjölfarnasta slóð á Hengillssvæðinu. Ofan ásanna tekur við sléttlendi sem gengið er að austanverðu slóðin sveigir síðan þvert yfir dalinn þar sem stikla eða vaða þarf yfir Reykjadalsá sem þarna er fremur lækur en á. Upp er svo haldið greinilega slóð að vestanverðu undir Molddalahnúkum. Neðan við slóðina eru nokkrir stórir athyglisverðir hverir. Slóðin endar í Klambragili við vegprest sem skiptir leiðum önnur til vesturs upp á Ölkelduháls (Leið 3), hin upp brekkuna að austanverðu í Dalasel, skála Orkuveitunnar og upp á Ölkelduháls (Leið 3), áhugaverður hringur sem bæta má við gönguna (3,8 km).


Í Klambragili er mikil hveravirkni og ákjósanlegur baðstaður í heitum læk sem rennur um gilið. Hann blandast þarna köldum lækjum sem lækkar hitastigið jafnt og þétt, finna má hitastig við hvers hæfi upp eða niður með læknum. Aðgæta skal vel hitastig þar sem lækurinn getur á köflum verið mjög heitur.