Gönguleið 4

Sleggjubeinsdalur – Engidalur (– Marardalur)
Erfiðleikastig 2.  8 km.

Smelltu á myndir til að stækka

Leiðarlýsing á prentvænu formi (2,31Kb)



Þessi leið er fremur löng (8km + 2 með Marardal) en öll á jafnsléttu, auðveld en kallar á nokkuð úthald. Leiðin hefst í Sleggjubeinsdal innan við Hellisheiðarvirkjun. Gengið er til vesturs undir Sleggju með útsýni á Svínahraun og Vifilsfell. Draugatjörn og Húsmúlarétt hlaðin úr hraungrýti eru rétt utan gönguleiðar á flötunum sunnan Húsmúla. Slóðin heldur áfram með rótum Húsmúla í sveig til norðurs um þýfðan móa með útsýni til Mosfellsheiðar.


Leiðin liggur um Engidal að skála Orkuveitunnar, Múlaseli. Skálinn er staðsettur í slakka vestan megin í dalnum í mjög fallegu umhverfi. Þar er fagurt útsýni yfir Engidal og hér gnæfir vesturhlið Hengilsins yfir, stórbrotin og hrikaleg með þverhníptum hömrum og bröttum hlíðum. Hér er gott að staldra við og njóta nestis og útsýnis. Áfram liggur svo leiðin um fagurt gil að vegpresti sem skiptir leiðum, önnur upp á Vörðu-Skeggja (Leið 9) og hin inn í Marardal og Dyradal (Leið 1). Stutt er að ganga inn í Marardal sem er stórbrotið náttúruundur.