Gönguleið 3
Ölkelduháls – Klambragil – Dalasel – Ölkelduháls
Erfiðleikastig 2. 5,8 km
Ótrúlega skemmtilegur og fjölbreyttur stuttur hringur sem ganga má hvort sem er rétt eða rangsælis. Hentar öllum og er sérstaklega skemmtilegur fyrir börn.
Ekið er af Suðurlandsvegi inn að Ölkelduhálsi að Upplýsingatöflu vestan við Ölkelduhnúk. Tvær leiðir hefjast þarna, ein yfir í Innstadal (Leið 8), en við höldum til austurs að vegpresti undir Ölkelduhnúk (1 km).
Smelltu á myndir til að stækka
Leiðarlýsing á prentvænu formi
(2,97Kb)

Þarna má velja hvort ganga skal rétt eða rangsælis.

Við göngum til suðurs (rangsælis) fyrst um gróna móa þar sem leið sveigir til austurs upp brekkustúf og áfram á fagurri klettabrún, gengið er niður í gil í nokkuð brattri skriðu, þarna er mikil hveravirkni og til austurs blasir Klambragil við.

Heitur lækur rennur um gilið og í hann renna einnig kaldir lækir svo þarna er því frá náttúrunnar hendi frábær aðstaða til að fara í notalegt bað, enginn ætti að sleppa því. Gæta þarf að hitastigi, á köflum er lækurinn mjög heitur. Velja má sitt kjörhitastig upp eða niður með læknum. Til suðurs liggur leið niður um Rjúpnabrekkur til Hveragerðis.

Við höldum áfram til norðurs og upp hlíðina að austanverðu. Í slakka ofarlega undir Dalskarðshnúk birtist Dalasel, annar skála Orkuveitunnar. Þarna er stórkostlegt útsýni í suður og sjást m.a. Kambarnir vel. Ofan skálans er litskrúðugt hverasvæði og þarna er upplagt að staldra við, huga að nesti og njóta útsýnis. Vegprestur vísar þar til Úlfljótsvatns (Leið 7). Í gilinu rétt vestan við skálann er góð vatnsuppspretta þar sem fylla má drykkjarílát.

Leiðin liggur nú upp frá skálanum til norðurs, gengið er í austurhlíð Klambragils um brattar skriður, hér er fetað einstigi. Leiðin er í sjálfu sér auðveld, örugg og öllum fær, en lofthræðsla getur þó gert vart við sig. Gott að hafa göngustaf þarna.

Uppi á brún Klambragils er fagurt útsýni til suðurs. Vegprestur er þarna sem skiptir leiðum, önnur í austurátt til Kattartjarna og Ölfusvatns (Leið 6), hin sem við fylgjum til vesturs um Ölkelduháls milli Tjarnarhnúks og Ölkelduhnúks. Hér er gengið um víðáttumikið og öflugt hverasvæði með fagurt útsýni til Hengils, Skarðsmýrarfjalls og svo Þingvallavatns til norðurs. Gangan endar við vegprestinn í vesturhlíð Ölkelduhnúks.