Gönguleið 2
Sleggjubeinsdalur - Innstidalur
Erfiðleikastig 2. Tæplega 4 km með heita læknum.
Í Innstadal er kjörið að ganga með börn, gangan er auðveld og fjölbreytni dalsins mikil og ekki skemmir heitur lækur fyrir.
Smelltu á myndir til að stækka
Leiðarlýsing á prentvænu formi
(2,41Kb)

Leiðin hefst í Sleggjubeinsdal innan við Hellisheiðarvirkjun. Gengið er upp hrygginn milli Sleggju og Skarðsmýrarfjalls upp í Sleggjubeinsskarð. Að austanverðu er öflugt og fagurt hverasvæði sem skartar mikilli litadýrð.

Útsýnið eykst með hverju skrefi. Uppi í skarðinu er vegprestur sem skiptir leiðum, önnur um vesturhlíð skarðsins upp á Vörðu-Skeggja (Leið 10), hin sem við göngum leiðir okkur inn í Innstadal sem er innstur Hengladala.

Slóðin heldur áfram með suðurhlið dalsins sem er grasi gróinn og sléttur, girtur fjöllum allan hringinn, Hengillinn í allri sinni dýrð til norðurs. Til norðvesturs gengur gil upp í Hengilinn með tignarlegum klettabeltum þar má ganga á Vörðu-Skeggja þó ekki sé það stikuð leið. Að austanverðu er gróið hraun, þar þrengist dalurinn. Lækur rennur eftir dalnum sem verður að Hengladalsá og síðar Varmá, lækjarvatnið er gott til að fylla á drykkjarílát.

Í hrauninu er vegprestur sem skiptir leiðum, önnur áfram til austurs yfir á Ölkelduháls (Leið 8), hin til norðurs upp á Vörðu-Skeggja (Leið 11). Ef genginn er spotti yfir dalinn inn á Vörðu-Skeggja leiðina, að gömlum skála og þaðan niður í gilið austan við skálann, er komið að heitum læk. Þar er notalegt að skella sér í bað eða aðeins fótabað, velja má hitatig eftir því hve ofarlega er farið.