Gönguleið 13

Nesjavellir - Vörðu-Skeggi

Erfiðleikastig 3. 7,7 km (frá upphafspunkti við Nesjavelli)

Smelltu á myndir til að stækka

Leiðarlýsing á prentvænu formi(1,96Kb)




Stórbrotin og falleg leið, hrikaleg og brött þegar ofar dregur en öruggur stígur. Haldið er til vesturs frá Upplýsingatöflu handan vegarins við Nesbúð að vegpresti sem skiptir leiðum, önnur áfram í Nesjavallavirkjun og Köldulaugargil, hin sem við fylgjum til austurs og svo upp eftir Stangarhálsi í suðvestur upp á Ölfusvatnsskyggni.


Þar er stórkostlegt útsýni yfir á Ölkelduháls, Grafning, Nesjavallavirkjun og Köldulaugagil. Áfram liggur leiðin upp undir Nesjaskyggni þar sem sveigt er til vesturs með hlíðinni. Upp af Kýrdalsbrúnum er sveigt upp hlíðina að vegpresti upp af Kýrdal. Hér skiptast leiðir önnur í Dyradal og Marardal (leið 12), hin sem við fylgjum á Vörðu-Skeggja. (Sjá leið C).



Leið A. (0,3 km)

Smelltu á myndir fyrir leiðarlýsingu

Leiðarlýsing á prentvænu formi 




Frá vegprestinum er haldið um móbergsklappir að rótum Vörðu-Skeggja þar er gengið utan í hlíðinni sem sveigir í hálfhring á leiðinni upp þannig að komið er á toppinn úr vestri.


Allstór varða er þar og útsýni til allra átta, hreint ógleymanlegt er að koma á toppinn í góðu skyggni. Þarna er óendanleg fjallasýn, Snæfellsjökull, Hekla, Eyjafjöll...


...Vestmannaeyjar og Suðurnes og allt þar á milli. Yfirsýn yfir Nesjavelli, Þingvallavatn og Þingvelli, einstök upplifun. Toppurinn nær alllangt bæði til vesturs og norðurs og gaman að ganga þarna aðeins um.


Leið B. (1,5 km)

Smelltu á myndir fyrir leiðarlýsingu

Leiðarlýsing á prentvænu formi




Frá vegpresti á móbergssléttunni er haldið upp nokkuð bratt skarð, klappir og laus sandur ofan á. Ofan skarðsins tekur við ganga um gróinn þröngan dal, einstaklega fallegan, hér er útsýni yfir Innstadal og suður úr, ógleymanlegt, oft fönn þar fram á sumar.


Áfram heldur slóðin upp bratta hlíð og yfir svolítinn hrygg, þar tekur við nokkuð brött fönn sem fara þarf yfir, gæti verið erfið fyrir lofthrædda, seinni hluta sumars má krækja niður fyrir. Nauðsyn að hafa göngustaf þarna. Af fönninni er stórfenglegt útsýni til vesturs.


Nú tekur við eitt sérkenna Hengilsins, þröngur gangur milli hamraveggja, þarna er gaman að kíkja upp á vegginn og virða fyrir sér hrikalegt útsýnið, Marardal örsmáan beint fyrir neðan og í vestri Reykjavík. Slóðin heldur áfram til norðurs upp á hrjóstrugan mel, bera skal virðingu fyrir þeim litla og viðkvæma gróðri sem berst þarna fyrir lífi sínu. Framundan birtist Vörðu-Skeggi eins og lítill sandhóll í fjarska, gengið er að vegpresti sem skiptir leiðum, önnur til austurs að Nesjavöllum, Dyradal og Innstadal. Sjá leið D, hin á Vörðu-Skeggja. Sjá leið A.



Leið C. (1,3 km)

Smelltu á myndir fyrir leiðarlýsingu

Leiðarlýsing á prentvænu formi




Frá vegprestinum upp af Kýrdal er haldið til suðvesturs eftir stíg utan í fjallinu þar sem hrikaleg björg gnæfa yfir og á hina höndina er horft ofan í hyldjúp gil.


Slóðin sveigir svo til suðurs upp klettasyllur, nánast eins og góðar tröppur, þarna er mosi og auðvelt að fóta sig þó bratt sé.


Ofan klettanna taka við grónir ásar, hamraveggur er til vesturs og gengið er samsíða gili sem sker ásana. Ofan gilsins fikrar slóðin sig upp með hamraveggnum uns komið er yfir brúnina að vegpresti á hásléttu Hengilssins. Hér skiptast leiðir önnur til suðurs í Innstadal (leið 11), hin sem við fylgjum á Vörðu-Skeggja. Sjá leið D.



Leið D. (0,4 km)

Smelltu á myndir fyrir leiðarlýsingu

Leiðarlýsing á prentvænu formi 




Frá vegpresti á hásléttu Hengilsins er gengið til norðurs yfir hrjóstruga ása niður á við, yfir fannir sem þarna liggja langt fram á sumar, Vörðu-Skeggi blasir við sem lítill sandhóll í fjarska.


Gengið yfir gróðursnauða mela að vegpresti við Vörðu-Skeggja, hér er leið niður í Marardal og Sleggjubeinsdal. Sjá leið B. Við höldum að Vörðu-Skeggja. Sjá leið A.