Gönguleið 12
Dyradalur - Vörðu-SkeggiErfiðleikastig 3. 6,7 km (frá upphafspunkti í Dyradal)
Smelltu á myndir til að stækka
Leiðarlýsing á prentvænu formi
(2,09Kb)
Stórbrotin og falleg leið, hrikaleg á köflum nokkuð bratt en allsstaðar auðvelt að fóta sig. Frá vegpresti (Leið 1) í dalverpi sunnan við Klungrin er haldið til suðausturs upp gil í norðurhlíð Vörðu-Skeggja sem gnæfir þarna yfir, gengið er um grónar brekkur til austurs þar sem leiðin liðast áfram upp með hlíðum fjallsins, upp og niður þar sem krækt er fyrir kletta og björg. Fagurt útsýni er yfir Klungrin, Skeggjadal og Kýrdalshrygg.

Upp af Kýrdal liggur leiðin aftur niðurávið til norðausturs og sveigir síðan í hálfhring að vegpresti sem skiptir leiðum önnur til austurs til Nesjavalla (Sjá leið 13) hin sem við fylgjum á Vörðu-Skeggja. Sjá leið D.