Gönguleið 11

Innstidalur - Vörðu-Skeggi

Erfiðleikastig 3. 7,2 km (Frá upphafspunkti í Sleggjubeinsdal) 

Smelltu á myndir til að stækka

Leiðarlýsing á prentvænu formi (2,31Kb)




Nokkuð brött upp úr Innstadal en ein auðveldasta leiðin upp á Vörðu-Skeggja. Leiðin hefst í Sleggjubeinsdal (Leið 2). Frá vegpresti í austanverðum Innstadal er haldið til norðurs að gömlum skála sem þar er og upp gróinn hrygg til norðausturs, þarna er nokkuð bratt og mesta hækkun þessarar leiðar er upp þennan hrygg. Þarna er greinilegur stígur sem auðvelt er að fóta sig á. Í gilinu austan við hrygginn er litskrúðugt hverasvæði og eftir gilinu rennur heitur lækur sem vinsæll er til baða.


Ofan hryggjar tekur við gróðursælt dalverpi sem gengið er áfram til norðausturs þar til komið er að móbergsstöllum, sem þarf að klöngrast upp. Ofan þeirra taka við berar móbergsklappir, gróður er þarna lítill og mjög viðkvæmur, fylgjum því slóðum.


Ofar taka við melar og sendnir ásar, þar er útsýn til Þingvallavatns og yfir Hengilssvæðið austanvert. Við erum nú á hásléttu Hengilsins, vegprestur skiptir þarna leiðum, önnur til austurs niður til Dyradals og Nesjavalla (Leið 13), hin sem fylgt er að Vörðu-Skeggja. Sjá leið D.