Gönguleið 10
Sleggjubeinsskarð - Vörðu-SkeggiErfiðleikastig 3. 6,9 km (Frá upphafspunkti í Sleggjubeinsdal).
Smelltu á myndir til að stækka
Leiðarlýsing á prentvænu formi
(2,91Kb)
Nokkuð erfið leið, virðist löng en er álíka og aðrar leiðir á Vörðu-Skeggja. Hækkar jafnt og þétt. Þessi leið er ekki fyrir lofthrædda. Leiðin hefst í Sleggjubeinsdal (Leið 2). Frá vegpresti í Sleggjubeinsskarði er í fyrstu haldið skáhalt upp vesturhlíð Sleggju leiðin sveigir til vesturs um gróna ása. Hér borgar sig að fylgja slóð þótt stikur sjáist í fjarska til norðurs og freistandi að stytta sér leið, gil sem skera ásana gera þá styttingu að engu.

Leiðin sveigir til norðurs um fallega ása með góðu útsýni yfir Innstadal, allt er þetta jafnt og þétt á fótinn. Útsýni til allra átta eykst eftir því sem ofar er komið.

Efst í ásunum er krækt fyrir gil og klifin allbrött en stutt brekka, þar taka við móbergsstallar sem þræddir eru áfram uppávið. Ofan stallanna er komið á örmjóan hrygg með brattar skriður niður í Innstadal að austanverðu, en 400 metra þverhnýpið niður í Engidal að vestanverðu, þessi leið er ekki ráðleg fyrir lofthrædda. Hryggurinn samanstendur af háum móbergsdröngum með skörðum á milli, gengið er einstigi utaní austurhlið hryggsins að allnokkru skarði milli dranganna, þarna er frábær útsýnispallur sem opnast eins og gluggi til vesturs. Leiðin liggur nú upp mjög bratta hlíð með lausum jarðvegi, hér þarf að fara varlega og hafa örugga fótfestu í hverju skrefi. Göngustafur er nauðsyn hér, sennilega varasamasti staðurinn á stikuðum leiðum um Hengilinn.

Ofan hlíðar er komið á myndarlega grasflöt, Vörðu-Skeggi blasir nú við og haldið er áfram til norðurs nú niðurávið um mólendi í fyrstu en svo um klappir og kletta sem taka á sig furðulegustu myndir og áfram yfir móbergssléttu að vegpresti. Leiðir skiptast þarna, önnur til vesturs niður í Marardal (Leið 9), hin sem við fylgjum, til austurs upp á Vörðu-Skeggja. Sjá leið B.