Gönguleið 1
1. Dyradalur - Marardalur - EngidalurErfiðleikastig 2
Um 5 km eru í Marardal en 2 km bætast við ef farið er áfram inn í Engidal. Þetta er auðveld leið sem hentar flestum, börn ráða vel við þessa leið. Aðeins þarf þó að gæta sín á klöppum sem geta verið hálar þar sem laus sandur er ofan á brattri klöpp.
Smelltu á myndir til að stækka
Leiðarlýsing á prentvænu formi
(2,61Kb)
Einstaklega falleg leið sem hefst við Upplýsingatöflu í Dyradal. Haldið er til vesturs upp slakkann og þá til suðurs í átt að nokkuð hárri klettabrún, auðveld slóð er upp á brúnina þar sem við tekur ganga um eitt stórkostlegasta móbergs belti Hengilssvæðisins, Klungrin.

Þarna eru kynjamyndir náttúrunnar allt um kring og gaman að skjótast þangað upp í þoku sem eykur upplifunina enn frekar. Suður endi klettanna er sérlega athyglisverður og minnir helst á fílahjörð. Áfram liggur leiðin eftir móbergshryggnum um stóra og smáa skessukatla sem vindurinn hefur mótað í bergið. Þarna er fagurt útsýni til bæði austurs og vesturs og inn undir Vörðu-Skeggja sem gnæfir yfir dalverpi nokkru, þar sem vegprestur skiptir leiðum.
Leið er til austurs upp og með norðurhlíðum Hengilsins (Leið 12). Sú sem við veljum liggur til vesturs upp litla hæð þar sem útsýni yfir Mosfellsheiði og Svínahraun opnast. Slóðin liggur nú niðurávið til suðausturs í átt að klettaskoru á brún Marardals.

Þaðan er haldið niður allbratta og grýtta brekku niður á botn dalsins. Lækur sem fellur í fossum niður gil í austurendanum liðast eftir endilöngum grasi grónum dalnum. Þarna er kjörið að staldra við og njóta fegurðar dalsins. Ef gengið er eftir dalnum endilöngum og út um skarðið að sunnanverðu, er komið í fallegt gil sem liggur áfram til suðvesturs og opnast inn í...
...Engidal þar sem er Múlasel, annar skála Orkuveitunnar á Hengilssvæðinu. Í gilinu milli Marardals og Engidals er vegprestur við hann hefst ein leiðanna á toppinn, Vörðu-Skeggja sjálfan (Leið 9).