Í allri starfsemi OR er gengið út frá umhverfismálum. – Orkuvinnsla í sátt við umhverfið
Öll orkuframleiðsla og neysluvatnsnotkun byggist á sjálfbærri framleiðslu.
Í Orkuveitunni eru margar borholur á sama borplani til þess að minnka jarðrask og borað á ská. Með því er hægt að auka nýtingu jarðhitasvæðisins.
Notkun hitaveitu í stað olíu dregur verulega úr losun koldíoxíðs sem veldur gróðurhúsaáhrifum.
Kostnaður við húshitun með jarðhita er um þriðjungi lægri en olíu
Á sumrin stendur Orkuveitan fyrir gönguferðum um Elliðaárdal, almenningi til skemmtunar og fróðleiks
Ef við notuðum kol til upphitunar þyrftum við u.þ.b. 560.000 tonn af kolum á ári
Alls koma rúmlega 500.000 gestir á ári í hús, virkjanir og á lendur Orkuveitunnar
Ef við notuðum olíu til upphitunar í stað jarðhita þyrftum við að flytja inn u.þ.b. 350.000 tonn af olíu á ári
Í Elliðaárdal eru m.a. göngu- og reiðleiðir