Viltu vinna hjá OR?
Ef þú hefur áhuga á að starfa hjá OR,
sendu okkur umsókn.
Starfsmannastefna
Störf í boði:
Veitusvið - Umsjónarmaður rafmagns
Veitusvið Orkuveitu Reykjavíkur óskar eftir að r áða rafmagnsverkfræðing eða tæknifræðing. Umsjónarmaður rafmagns gegnir lykilhlutverki í rekstri rafmagnsveitunnar og stuðlar með frumkvæði og metnaði að hagkvæmum og öruggum rekstri stærstu rafmagnsveitu landsins. Umsjónarmaður heyrir undir forstöðumann Rekstrar á Veitusviði. Veitusvið annast rekstur og uppbyggingu allra veitukerfa Orkuveitunnar, sinnir eftirliti og viðhaldi auk þess að stjórna og vakta allt kerfið.
Umsóknarfrestur er til og með 20. maí 2012
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Skipulag reglubundins eftirlits og viðhalds í rekstri rafmagnsveitu
- Gerð rekstraráætlana
- Gerð og viðhald viðbragðsáætlana
- Umsjón með forgangsröðun rekstrarverkefna og gangsetningu verkefna
- Vöktun á rekstrarkostnaði
- Þátttaka í stefnumótun
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólagráða í rafmagnsverkfræði eða tæknifræði helst af sterkstraumssviði
- Reynsla af liðaprófunum æskileg
- Almenn rekstrar- og hönnunarreynsla æskileg
- Góð tölvukunnátta
- Færni í mannlegum samskiptum
- Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Viðhaldsþjónusta OR á Suðurlandi - vélfræðingur
Viðhaldsþjónusta óskar eftir vélfræðingi til starfa við veitukerfi Orkuveitu Reykjavíkur á Suðurlandi með starfsstöð í Hveragerði. Deildin samanstendur af fagfólki sem sér um r ekstur og viðhald í öllum kerfum OR. Búseta á veitusvæði OR á Suðurlandi er skilyrði. Umsóknarfrestur er til og með 13. maí 2012
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Rekstur, eftirlit og viðhald á vélbúnaði í dælustöðvum,borholum, dreifikerfum og húsþjónustu OR á Suðurlandi
- Bakvaktir vegna ofangreindra kerfa
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Vélfræðingur eða sambærileg menntun
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Færni í mannlegum samskiptum
- Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Einstaklingar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um störfin. Nánari upplýsingar gefa Helgi Helgason (helgi.helgason@or.is) fyrir umsjónarmann rafmagns í síma 5166491 og Bjarni Snorrason
(bjarni.snorrason@or.is) fyrir vélfræðing á Suðurlandi í síma 516 7050. Umsjón með úrvinnslu umsókna hafa Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Silja Jóhannesdóttir
(silja.johannesdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Umsókn um
starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.