Vinnustaðurinn

Starfsfólk Orkuveitu Reykjavíkur vinnur að öflun og dreifingu orku, vatns og við að sinna alhliða þjónustu við viðskiptavini. Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur eru að Bæjarhálsi í Reykjavík.
Öll starfsemi og starfshættir fyrirtækisins er skráð og skilgreind í Rekstrarhandbók og starfsmenn setja sér markmið sem skráð eru í Skorkort, kerfi markmiðastýringa. Fyrirtækið hefur sett fram skýra
starfsmannastefnu og gildi og við það er starfandi jafnréttisnefnd.
Á hverju sumri ræður Orkuveita Reykjavíkur til sín nemendur úr framhaldsskólum og af háskólastigi. Nemendur af framhaldsskólastigi sinna margvíslegum viðhaldsverkefnum og umhverfisbótum, en háskólanemar eru ráðnir til þess að vinna að verkefnum sem tengjast sérhæfingu þeirra í námi.
Starfsfólk Orkuveitunnar er um 520 talsins.