Sumarvinna 2010

Orkuveitan ræður sumarstarfsmenn til vinnu á flestum sviðum/deildum og  á nánast öllu athafnasvæði fyrirtækisins. Stærsti hópurinn er ungt fólk á framhaldsskólaaldri.  

Sendu inn umsókn um almenn sumarstörf hér (vinsamlegast takið það fram í athugasemdum umsóknarinnar ef óskað er eftir starfi á sérstakri deild).

Umsóknarfrestur um sumarstarf 2010 er til sunnudagsins 14. mars.

Framkvæmdasvið
Á vegum Framkvæmdasviðs OR er unnið að umhirðu fasteigna og landssvæða OR, þ.e. við hreinsun og ræstingar, gróðursetningu og málun. Sumarfólki er skipað í vinnuflokka sem fara víða yfir sumarmánuðina, um Hengilssvæðið, við málun á götukössum og við lagfæringar á borholuhúsum svo eitthvað sé nefnt.  Starfinu fylgir ítarleg fræðsla um öryggismál, sem og önnur námskeið á vegum fyrirtækisins.  Framkvæmdasvið hefur einnig ráðið til sumarstarfa iðnnema úr ýmsum greinum.

Matstofa
Orkuveita Reykjavíkur býr að fullkomnu eldhúsi sem sér um að fæða 500-700 starfsmenn og gesti fyrirtækisins á degi hverjum. Á hverju ári ræður Matstofan til sín nokkra sumarstarfsmenn til afleysinga við ýmis störf eldhússins.

Afgreiðsla
Afgreiðsludeild OR annast afgreiðslu og þjónustu við viðskiptavini Orkuveitunnar. Hún sinnir viðskiptavinum fyrirtækisins sérstaklega vegna notkunar og reikninga,  auk  þess að svara almennum fyrirspurnum eða sér til þess að þær komist til þeirra deilda Orkuveitunnar er málið varðar. Um að ræða símsvörun í þjónustuveri þar sem veittar eru upplýsingar um reikninga, notkun og annað sem viðskiptavinir Orkuveitunnar leita eftir. 


Háskólanemar

Á hverju vori eru ráðnir háskólanemar til margvíslegra starfa í ýmsum deildum OR. Um er að ræða tölvu-, verk- og tæknifræðinema, t.d. við vinnu við veitukerfi, við skráningu fasteigna og umsjón og til starfa í tæknideild við tölvumál. Í lok sumars er svo til siðs að háskólanemarnir geri grein fyrir afmörkuðum verkefnum sem þeir hafa unnið yfir sumartímann. Þá hafa verið ráðnir til sumarstarfa nemar úr félags- og hugvísindanámi til fjölbreyttra starfa í fyrirtækinu.