Nesjavallavirkjun

Framkvæmdir við Nesjavallavirkjun hófust 1987. 29. september árið 1990 var orkuverið formlega gangsett. Nesjavallavirkjun framleiðir nú 120 MW af rafmagni og 300 MW í varmaorku, jafngildir 1640 1/sek af 83° C hita. Á Nesjavöllum hafa verið boraðar 25 holur, dýptin er á bilinu 1.000 til 2.200 metrar og mælst hefur allt að 380° C hiti. Meðalhola býr yfir 60 MW orku, sem nægir til hitaveitu fyrir 7500 manns og umframgufa er notuð samtímis til rafmagnsframleiðslu.

Árlega koma þúsundir gesta til Nesjavalla í þeim tilgangi að skoða Nesjavallavirkjun. Þar er glæsileg aðstaða til sýninga á einu helsta verkfræði- og tækniafreki Íslendinga.

Afgreiðslutími Gestamóttöku Nesjavallarvirkjunar
Sumartími: Frá 1. júní til 1. september
Mánudaga-laugardaga: 9:00-17:00
Sunnudaga: 13:00-18:00

Vetrartími: 1. september til 30 maí
Mánudaga-laugardaga: Samkvæmt pöntunum
Sunnudaga: Lokað

Skoðaðu Nesjavallavirkjun á Fræðsluvefnum hér!