Hellisheiðarvirkjun

Hellisheiðarvirkjun nýtir jarðvarma til rafmagns- og heitavatnsframleiðslu á sunnanverðu Hengilssvæðinu í Sveitarfélaginu Ölfusi í Árnessýslu. Markmið virkjunarinnar er að mæta aukinni eftirspurn atvinnuvega og almennings eftir raforku og varma. 90 MWe rafstöð var gangsett haustið 2006 og 33 MWe lágþrýstivél gangsett í nóvember 2007. Þá voru tvær 45 MW rafstöðvar teknar í notkun síðla árs 2008. Núverandi framleiðslugeta er því 303 MW.
Raforkan frá Hellisheiðarvirkjun fer í gegnum
tengivirki Landsnets á 220 kV spennu inná háspennulínu, sem liggur um framkvæmdasvæðið. Virkjunin framleiðir 130 MW af heitu vatni. Leið hitaveituæðar frá virkjuninni liggur um land Ölfuss, Mosfellsbæjar og Reykjavíkur að geymum Orkuveitunnar á Reynisvatnsheiði.
Jarðvarmi úr u.þ.b. 50 borholum er nýttur til framleiðslu á rafmagni í Hellisheiðarvirkjun.
Umhverfi
Orkuveita Reykjavíkur vinnur í sátt við náttúruna á öllum sviðum. Stuðlað er að góðri nýtingu náttúruauðlinda, fegrun lands og umhverfis. Lögum samkvæmt framkvæmdi Orkuveitan mat á umhverfisáhrifum Hellisheiðarvirkjunar, og komu margir aðilar og stofnanir að verkinu. Skv. niðurstöðu umhverfismats er talið ólíklegt að Hellisheiðarvirkjun muni hafa verulega neikvæð áhrif. Góð nýtni á auðlindinni gerir það að verkum að losun gróðurhúsalofttegunda á hverja kWst verður með því lægsta sem völ er á við orkuframleiðslu.
Áhrif á gróður á virkjunarsvæðinu, vatnsverndarsvæði og við heitavatnsæð til Reykjavíkur, takmarkast við rask á grónum svæðum sem fara undir mannvirki, svo sem borteiga, lagnir, vegi, námur og bygginar og nánasta umhverfi þeirra. Ekki er búist við breytingum á yfirborðsvirkni jarðhita á Hellisheiði í jarðhitanýtingar og lítil hætta talin stafa af losun brennisteinsvetnis frá virkjuninni.
Skoðaðu vinnslurás Hellisheiðavirkjunar
Brennisteinsvetni
Orkuveita Reykjavíkur hefur fylgst með magni brennisteinsvetnis á Hellisheiði í áratug, en efnið er það sem veldur sk. hveralykt. Frá fyrri hluta ársins 2006 hefur Umhverfissvið Reykjavíkurborgar mælt magn brennisteinsvetnis innan þéttbýlisins. Mesta magn sem mælst hefur er þriðjungur viðmiðunarmarka sem aftur er um einn hundraðasti hluti þess magns sem talinn er geta haft áhrif á heilsu fólks.
Jarðhitasýning
Orkuveita Reykjavíkur og Orkusýn ehf., sem er í eigu fyrrverandi starfsmanna Orkuveitunnar, hafa gert með sér samning um að Orkusýn standi fyrir jarðhitasýningu í Hellisheiðarvirkjun og kynni fyrirtækið og starfsemi þess með sama hætti og gert hefur verið undanfarin ár.
Heimasíða Orkusýnar
Jarðhitasýningin í Hellisheiðarvirkjun er opin frá kl. 9:00 til 17:00 alla daga (einnig um helgar) og er þar hægt að kynna sér vistvæna orkuframleiðslu Orkuveitu Reykjavíkur með jarðhita og virkjunina sjálfa.
Allar nánari upplýsingar og hópabókanir eru í síma 412 5800 eða
orkusyn@orkusyn.is.