Andakílsárvirkjun

Sameignarfélagið Andakílsárvirkjun var stofnað 1. nóvember 1942, en hugmyndir um virkjun Andakílsár höfðu fyrst vaknað árið 1908. Framkvæmdum við fyrstu virkjunina og stöðvarhús lauk árið 1947 og í október það ár var spennu hleypt á dreifikerfið og rekstur hafinn.  Leysti virkjunin af hólmi vélknúnar rafstöðvar, sem notaðar höfðu verið bæði á Akranesi og í Borgarnesi og tengdust sveitabýli henni jafnframt. Unnið var að stækkun virkjunarinnar jafnt og þétt og má segja, að virkjun Andakílsár hafi ekki lokið fyrr en árið 1974 þegar ný vélarsamstæða var tekin í notkun. Framleiðslugetan er 8.2. Mw og ársafköst 32 gwst. 
Framleiðsla virkjunarinnar er seld inn á kerfi Landsnets.


Skoðaðu myndefni um virkjunina á Fræðsluvefnum