Virkjanir

Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun eru jarðvarmavirkjanir Orkuveitu Reykjavíkur, virkjunin á Nesjavöllum fullsmíðuð, en Hellisheiðarvirkjun fyrsta af fyrirhuguðum virkjunum á Hengilssvæðinu. Nesjavallavirkjun hefur séð höfuðborgarsvæðinu fyrir heitu vatni undanfarna áratugi og rafmagn frá henni selt inn á kerfi Landsnets.
Í byrjun vetrar 2010 verður fyrsti áfangi hitaveitu frá Hellisheiðarvirkjun tekinn í notkun, en aukin framleiðsla á heitu vatni til hitaveitu er ein frumforsenda byggingar Hellisheiðarvirkjunar. Nesjavallavirkjun er fullbyggð og heitavatnslögnin frá henni fullnýtt. Þessi fyrsti áfangi er 133MW og verður vatnið flutt um nýja lögn sem lögð hefur verið neðanjarðar til safntanka á Reynisvatnsheiði.
"Gömlu" vatnsaflsvirkjanirnar tvær, Elliðaárvirkjun og Andakílsárvirkjun eru börn síns tíma. Raunar má segja, að rafstöðin í Elliðaárdalnum sé minnisvarði um framsýni frumherjanna og þangað áttu að leggja leið þína til þess að sjá búnað frá árinu 1921 sem enn er í notkun!
Álfsnesstöðin er svo framlag Orkuveitunnar til tilraunaframleiðslu á vistvænu eldsneyti og þar er metangas (hauggas) notað til þess að knýja rafal til raforkuframleiðslu.