Virkjanir

Gamla rafstöðin í ElliðaárdalOrkuveita Reykjavíkur á og rekur fjórar virkjanir; Hellisheiðarvirkjun, Nesjavallavirkjun, Andakílsárvirkjun og Elliðaárvirkjun.

Hellisheiðarvirkjun og Nesjavallavirkjun eru jarðvarmavirkjanir Orkuveitu Reykjavíkur. Virkjunin á Nesjavöllum er fullsmíðuð og byggingu Hellisheiðarvirkjunar lauk á árinu 2011 með gangsetningu tveggja 45 MW vélasamstæðna. Nesjavallavirkjun hefur séð höfuðborgarsvæðinu fyrir heitu vatni frá árinu 1990 og rafmagn frá henni er selt inn á kerfi Landsnets.

Vatnsaflsvirkjanirnar tvær, Elliðaárvirkjun og Andakílsárvirkjun eru börn síns tíma. Raunar má segja að rafstöðin í Elliðaárdalnum sé merkur minnisvarði um framsýni þeirra sem vildu efla velferð og lífsgæði Íslendinga í byrjun 20. aldar.