Vatnsveita

Orkuveitan aflar neysluvatns í Heiðmörk, Berjadal við Akrafjall, Seleyri norðan Hafnarfjalls, í Grábrókarhrauni, Bjarnarfelli, Svelgsárhrauni, Grund, Hellisheiði og á Nesjavöllum.

Vatnsveitan þjónar rúmlega 82% íbúa höfuðborgarsvæðisins. Árið 1999 varð Vatnsveita Reykjavíkur fyrsta vatnsveita Norðurlanda til að hljóta vottun skv. ISO-9001 staðlinum.

Aðaldreifikerfi neysluvatns í Reykjavík er samtals um 330 km og heimaæðar 190 km.  Á vatnstökusvæðunum í Heiðmörk er 21 borhola í notkun, allar á bilinu 10-140 metra djúpar.  Gvendarbrunnar eru í 85 metra hæð yfir sjávarmáli.  Árið 1984 var síðasta opna vatnsbólið tekið úr notkun og í dag kemur allt vatn úr lokuðum borholum, sem tryggir enn frekar öryggi vatnsins gegn mengun.  Í Gvendarbrunnum eru sjö vinnsluholur, á Jaðarsvæði eru níu, þrjár eru á Myllulæk og tvær í Vatnsendakrika.