Orkuveita Reykjavíkur nýtir vatn af fjórum lághitasvæðum: Laugarnessvæði og Elliðaársvæði í Reykjavík og Reykjum og Reykjahlíð í Mosfellsbæ. Þá nýtum við háhitasvæðið að Nesjavöllum og á Hellisheiði.
Í desember 2010 var fyrsti áfangi hitaveitu frá Hellisheiðarvirkjun tekinn í notkun, en aukin framleiðsla á heitu vatni til hitaveitu er ein frumforsenda byggingar Hellisheiðarvirkjunar. Nesjavallavirkjun er fullbyggð og heitavatnslögnin frá henni fullnýtt. Þessi fyrsti áfangi hitaveitu frá Hellisheiði er 133 MW og er vatnið flutt um nýja lögn sem lögð hefur verið neðanjarðar til safntanka á Reynisvatnsheiði.
Jarðhitavatnið frá lághitasvæðunum er nýtt beint á dreifikerfið en á Nesjavöllum og Hellisheiði er jarðhitinn notaður til að hita upp kalt grunnvatn sem veitt er til Reykjavíkur, Kópavogs og Garðabæjar. Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar (HAB) sér byggðum á sínu svæði fyrir heitu vatni. OR á einnig veitur í frístundabyggðum á Suður- og Vesturlandi, ásamt hitaveitu í Stykkishólmi.