Fráveita

Lagnakerfi fráveitunnar er um 800 km langt og stærstu sjáanlegu mannvirkin í Reykjavík eru hreinsistöðvarnar tvær, sjö dælustöðvar og 6-7 minni stöðvar á víð og dreif í kerfinu.  Orkuveita Reykjavíkur rekur einnig fráveitur á Álftanesi, á Akranesi og í Borgarbyggð.

Stærsta verkefni fráveitunnar og eitt mesta umhverfisbótaverkefni sem unnið hefur verið að hér á landi er hreinsun strandlengjunnar við Reykjavík. Vinna við þetta verkefni hófst um 1980 þegar mengun í fjörum var orðin öllum til ama. Verkefnið tók mikinn kipp frá árinu 1995 þegar lagt var á sérstakt holræsagjald, en segja má, að því hafi formlega lokið 16. júní 2005 þegar tekin var í notkun dælustöð fyrir skolp í Gufunesi og fráveitu frá Grafarvogi, Grafarholti og Mosfellsbæ var komið í samband við hreinsistöðina í Klettagörðum.