Veitur og veitusvæði

Starfssvæði Orkuveitu Reykjavíkur nær til Suður- og Vesturlands auk höfuðborgarsvæðisins. Á höfuðborgarsvæðinu rekur OR stærstu jarðhitaveitu í heimi en að auki 16 smærri veitur á sunnan- og vestanverðu landinu, frá Hvolsvelli í austri til Grundarfjarðar í vestri. Orkuveita Reykjavíkur hóf árið 1996 rafmagnsframleiðslu á Nesjavöllum samhliða heitavatnsframleiðslunni. Uppsett afl virkjunarinnar er 120 MW. Auk þess rekur Orkuveita Reykjavíkur tvær vatnsaflsvirkjanir og eina stöð er brennir hauggasi frá sorpurðun. Samanlagt afl þeirra er 12 MW en uppsett afl Hellisheiðarvirkjunar fullgerðrar verður 303 MW.
Orkuveita Reykjavíkur framleiðir rafmagn til heimilisnota og fyrir atvinnulífið og selur eigin framleiðslu og orku keypta í heildsölu af Landsvirkjun á samkeppnismarkaði. Raforkudreifing Orkuveitu Reykjavíkur nær til liðlega helmings landsmanna í sex sveitarfélögum við Faxaflóa. OR rekur 13 vatnsveitur á starfssvæði sínu auk þess að selja neysluvatn í heildsölu til þriggja að auki, samtals til meira en helmings þjóðarinnar. Meginatriði í þátttöku Orkuveitu Reykjavíkur í umsjón innviða sjálfbærra samfélaga er rekstur umhverfisvænna fráveitna. Orkuveita Reykjavíkur á fráveitur í sjö misstórum byggðarlögum og rekur dælustöðvar fyrir tvö sveitarfélög til viðbótar. Alls þjónar Orkuveitan liðlega helmingi þjóðarinnar í fráveitumálum.
Veitusvæði OR
(348Kb)