Innkaupastefna
Það er stefna Orkuveitu Reykjavíkur að:
- Megin reglan við innkaup sé sú að beita opnum útboðum við kaup á vörum, þjónustu og verkframkvæmdum og að hagstæðasta tilboði sé tekið. Verði opnum útboðum ekki viðkomið, skal beita lokuðum útboðum, [...] fyrirspurnum og beinum samningum eða innkaupum. Innkaupareglur og innkaupaaðferðir skulu vera skýrar og gegnsæjar.
- Við innkaup sé tekið tillit til öryggis-, heilbrigðis-, gæða- og umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar, þ.e. ef vörur eru sambærilegar að öðru leyti ber að velja þá tegund sem minni áhrif hefur á heilbrigði og umhverfi og/eða eru framleiddar skv. vottuðu gæðakerfi.
- Beita hagkvæmum innkaupaaðferðum með markvissum og skipulögðum vinnubrögðum við innkaup og stuðla þannig að hagkvæmni í rekstri og framkvæmdum fyrirtækisins.
- Samræma innkaup sem einstök svið fyrirtækisins hafa þörf fyrir.
- Ábyrgð á innkaupum sé á hendi viðkomandi framkvæmdastjóra/sviðsstjóra, enda séu þau ávallt í samræmi við samþykktar fjárhagsáætlanir.
- Við innkaup sé þess gætt að ákvæðum laga og reglugerða sé fylgt, s.s. reglugerðar um innkaup stofnana sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og fjarskipti nr. 755/2007, eftir því sem við á. Ennfremur alþjóðasamningum, s.s. EES-samningnum. Jafnræðis skal gætt og virt meðal seljanda.
Hvorki starfsmenn né stjórnarmenn geta átt aðild að ákvörðunum um innkaup eða útboð er varða aðila sem þeir eru náskyldir. eða í hagsmunatengslum við. Við mat á vanhæfi skal miða við stjórnsýslulög.
Starfsmönnum er óheimilt að þiggja boðsferðir sem tengjast viðskiptum fyrirtækja við Orkuveitu Reykjavíkur nema með sérstakri heimild forstjóra.