Um sjóðinn
Umhverfis- og orkurannsóknasjóðurinn er í eigu Orkuveitu Reykjavíkur sem ber, ásamt vísindaráði, faglega ábyrgð á sjóðnum. Hlutverk sjóðsins er að vera rannsóknarsjóður sem á að standa fyrir og efla rannsóknir, þróun og nýsköpun á sviði umhverfis- og orkumála, þar með taldar þverfaglegar rannsóknir.
Markmið Orkuveitunnar með stofnun sjóðsins er:
- Tryggja stöðu Orkuveitunnar sem leiðandi orkufyrirtækis í náinni framtíð.
- Treysta samkeppnisstöðu fyrirtækisins með tækni og hugviti, sem eykur arðsemi fyrirtækisins heima og erlendis.
- Tryggja samkeppnisforskot Orkuveitunnar sem stærstu hitaveitu í heimi, sem eingöngu nýtir jarðvarma.
- Fyrirtækið verði miðpunktur í samstarfi vísindamanna og hugmyndasmiða um nýjar lausnir í umhverfis- og orkumálum.
- Miðlun hugvits sem útflutningsvöru á sviði umhverfis- og orkumála.
- Fá aðgang að nýjum umhverfisvænum orkugjöfum framtíðarinnar.
Sjóðurinn veitir styrki til verkefna í umhverfis-og orkurannsóknum sem varða:
- Hagnýtar framfarir í kjarnastarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur, uppbyggingu og rekstri vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu, fráveitu eða gagnaveitu.
- Tengsl starfsemi OR við umhverfi, samfélag og efnahag
- Aukna hagnýtingu endurnýjanlegra orkugjafa
Samstarfið hefur það að leiðarljósi að:
- Treysta samstarf Orkuveitunnar við sérfræðinga og vísindamenn sem stunda rannsóknir á sviðinu.
- Gera umhverfis- og orkurannsóknir að spennandi valkosti fyrir unga vísindamenn.
- Fá aðgang að bestu hugmyndum og tryggja þeim framgang.
- Efla samstarf atvinnulífs og háskólaumhverfis í umhverfis- og orkurannsóknum.
- Efla íslenska háskóla sem rannsóknarháskóla og um leið samkeppnisstöðu þeirra.
- Auðvelda íslenskum vísindamönnum að taka þátt í stórum alþjóðlegum umhverfisverkefnum.
- Íslenskar orku- og umhverfisrannsóknir verði í forystuhlutverki á heimsvísu.