Vinnuumhverfi og öryggismál

Stefna Orkuveitu Reykjavíkur er að tryggja öllum starfsmönnum öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi. Markmið okkar er slysalaus vinnustaður og að enginn starfsmaður bíði heilsutjón af starfi sínu hjá fyrirtækinu.

Til þess að ná þessu markmiði ætlast stjórnendur fyrirtækisins til þess að allir starfsmenn vinni að þessum sameiginlegu markmiðum í samræmi við þessa stefnu.

Í rekstri fyrirtækisins er gert ráð fyrir að fylgt sé öllum kröfum skv. lögum og reglum og að sífellt sé unnið að endurbótum sem stuðla að auknu öryggi starfsmanna, samstarfsaðila og viðskiptavina fyrirtækisins.

Leiðir að þessu markmiði eru að:

Orkuveita Reykjavíkur:

  • Skapar starfsmönnum, þjónustuaðilum  og öðrum sem erindi eiga við hana öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi.
  • Leggur starfsmönnum til aðstöðu, tæki og búnað sem er í góðu ástandi og uppfyllir öryggiskröfur.
  • Tryggir að búnaður fyrirtækisins sé skoðaður og prófaður reglulega.
  • Fræðir og þjálfar starfsmenn á sviði öryggis- og vinnuverndarmála.
  • Framkvæmir áhættumat fyrir allt fyrirtækið og tryggir að slíkt mat verði gert í hvert sinn sem tekinn er í notkun nýr búnaður og / eða nýtt verklag, sem getur skapað hættu fyrir starfsmenn.
  • Kemur upplýsingum um kröfur fyrirtækisins um öryggis- og heilbrigðismál með markvissum hætti til birgja, viðskiptavina og þjónustuaðila.
  • Tryggir virka þátttöku stjórnenda í öryggis- og heilbrigðismálum.
  • Sér til þess að starfsmenn fái nauðsynlega þjálfun til viðkomandi starfa og að til séu verklagsreglur og vinnuleiðbeiningar sem nýtast starfsmönnum.
  • Lætur gera reglulega innri úttektir til að tryggja virkni kerfisins.

Starfsmenn Orkuveitunnar:

  • Þekki og vinni í samræmi við skráðar öryggisreglur fyrirtækisins og gildandi vinnuverndarreglur til að tryggja öryggi fólks, búnaðar og vinnuumhverfis.
  • Noti undir öllum kringumstæðum öryggisbúnað, hlífðarfatnað og persónuhlífar sem kröfur eru gerðar um.
  • Taki virkan þátt í öryggisfundum, námskeiðum og kynningum um öryggis- og heilbrigðismál.

Starfsmönnum Orkuveitunnar er með öllu óheimilt að vinna verk án þess að fylgja öryggisreglum og nota viðeigandi hlífðarbúnað. Ef öryggisbúnaður er ekki til staðar skulu þeir gera hlé á vinnu sinni þar til tilhlýðilegur búnaður er kominn í notkun.