Umhverfisstefna
Orkuveita Reykjavíkur leggur lykiláherslu á umhverfislega ábyrgð sem felst í virðingu gagnvart umhverfinu og ábyrga nýtingu auðlinda. Orkuveita Reykjavíkur stefnir á:
- Að vera í fararbroddi í umhverfismálum á öllum sviðum, standast allar opinberar kröfur og vinna að góðri sátt um virkjanir og vinnusvæði.
- Að setja sér mælanleg markmið í umhverfismálum.
- Að nýta auðlindir á vatnsverndarsvæðum og jarðhitasvæðum með sjálfbærum hætti.
- Að lágmarka útstreymi gróðurhúsalofttegunda.
- Að auka landgæði og kolefnisbindingu með landgræðslu og skógrækt.
- Að vinna markvisst að aukinni notkun vistvænnar orku.
- Að starfsfólk og birgjar fyrirtækisins uppfylli markmið umhverfisstefnu Orkuveitu Reykjavíkur.
- Að vera leiðandi á markaði í sölu umhverfisvænna afurða.
- Að vinna að stöðugum umbótum í samræmi við umhverfisstjórnunarstaðla ISO 14001 og Earth Check.
- Að vakta þýðingarmikla umhverfisþætti og stýra þeim sem tök er á.
ÞÝÐINGARMIKLIR UMHVERFISÞÆTTIR
Þýðingarmiklir umhverfisþættir eru þeir sem verða fyrir áhrifum af starfsemi fyrirtækisins og lúta að kjarnastarfsemi þess. Fyrirtækið stýrir og vaktar þýðingarmikla umhverfisþætti eins og kostur er og hafa eftirtaldir þættir verið metnir sem þýðingarmiklir:
- Útstreymi gróðurhúsalofttegunda.
- Landgræðsla og skógrækt.
- Úrgangur og hlutfall endurvinnslu.
- Notkun auðlinda.
- Hitaþolnar örverur.
- Magn brennisteinsvetnis og hlutfall hreinsunar.
- Hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum.