Stjórn og skipulag



Skipurit Orkuveitu Reykjavíkur

OR er sameignarfélag í eigu þriggja sveitarfélaga; Reykjavíkurborgar (94%), Akraneskaupstaðar (5%) og Borgarbyggðar (1%). Framkvæmdastjórar sveitarfélaganna - borgarstjórinn í Reykjavík, bæjarstjórinn á Akranesi og sveitarstjóri Borgarbyggðar - fara með atkvæði þeirra á aðalfundi. Haraldur Flosi Tryggvason er stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Aðrir stjórnarmenn eru Brynhildur Davíðsdóttir, Gylfi Magnússon, Kjartan Magnússon, Sóley Tómasdóttir og Hrönn Ríkharðsdóttir. Áheyrnarfulltrúi Borgarbyggðar er Björn Bjarki Þorsteinsson. Innri endurskoðandi er Guðmundur I. Bergþórsson.


   
 Haraldur Flosi Tryggvason
 Stjórnarformaður
 Bjarni Bjarnason
 Forstjóri

Bjarni Bjarnason lauk B.Sc. prófi í jarðfræði frá Háskóla Íslands árið 1981. Þá tók hann licentiat-próf í námaverkfræði frá Tækniháskólanum í Luleå í Svíþjóð 1986.

Bjarni tók við forstjórastarfi OR 1. mars 2011. Hann hafði þá starfað sem forstjóri Landsvirkjunar Power, dótturfélags Landsvirkjunar, frá 2008 en áður var hann framkvæmdastjóri orkusviðs Landsvirkjunar um sjö ára skeið. Bjarni hefur sinnt ýmsum stjórnunarstörfum á ferli sínum, m.a. sem tæknistjóri Jarðborana hf., framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar í Mývatnssveit og forstjóri Íslenska járnblendifélagsins á Grundartanga. Bjarni er varaforseti Alþjóða Vatnsorkusamtakanna, International Hydropower Association.

Framkvæmdastjórar:  

Páll Erland er framkvæmdastjóri Veitna og Tækni. 
Ingvar Stefánsson er framkvæmdastjóri Fjárhags.
Þorvaldur E. Sigurðsson er framkvæmdastjóri Virkjana og sölu. 
Inga Dóra Hrólfsdóttir er framkvæmdastjóri Þróunar.
Skúli Skúlason er framkvæmdastjóri Þjónustu.

   
 Ingvar Stefánsson
 Framkvæmdastjóri Fjármála
 Páll Erland
 Framkvæmdastjóri Veitna
 og Tækni
Inga Dóra Hrólfsdóttir
Framkvæmdastjóri
Þróunarsviðs

Ingvar hefur viðskiptafræðipróf á endurskoðunarsviði auk meistaragráðu í fjármálum og stjórnun og hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr atvinnulífinu. Hann var starfsmannastjóri hjá Esso í átta ár, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Olíufélagsins í fjögur ár, framkvæmdastjóri dótturfyrirtækis Lyfja og heilsu í tvö ár, kennari við Háskólann á Bifröst í fjármálum, samningatækni, stjórnun og stefnumótun samhliða annarri vinnu og loks framkvæmdastjóri og forstöðumaður Íslandsbanka Fjármögnunar sem er um 40 manna eining innan bankans.

Páll er stúdent frá Raungreinadeild Menntaskólans á Akureyri og nam Iðnrekstrarfræði við Háskólann á Akureyri.  Hann lauk BS prófi í viðskiptafræði frá Rockford College í Bandaríkjunum árið 1994 og MBA í rekstrarhagfræði frá Rockford College Graduate School árið 1996. Páll var sölu- og markaðsstjóri hjá Icelandic France (SH) árin 1996 - 99, rekstrarráðgjafi hjá Pricewaterhouse Coopers í tvö ár eftir það, en frá árinu 2001 hefur hann unnið hjá Orkuveitu Reykjavíkur, fyrst að sérverkefnum fyrir yfirstjórn, þá sem deildarstjóri Vörustjórnunar og loks sem aðstoðarframkvæmdastjóri Framkvæmdasviðs.

Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs, er byggingarverkfræðingur frá Háskóla Íslands 1993 og með Meistarapróf frá Chalmers Tekniska Högskola í Svíþjóð auk rekstrar og viðskiptanáms frá Endurmenntun HÍ. Hún hóf störf hjá Hitaveitu Reykjavíkur árið 1996 og hefur starfað hjá Orkuveitunni frá stofnun hennar. Á ferli sínum innan OR hefur hún m.a. verið deildarstjóri landupplýsingakerfa, sviðsstjóri tæknimála og sviðsstjóri framkvæmda.

    
 Þorvaldur E. Sigurðsson
 Framkvæmdastjóri 
 Virkjana og sölu
Skúli Skúlason
Framkvæmdastjóri 
Þjónustu

Þorvaldur er rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands.  Hann er með víðtæka stjórnunarreynslu úr íslensku atvinnulífi, m.a. sem forstöðumaður kerfisfræði- og vélbúnaðarsviðs Kögunar í 10 ár. Þá var hann framkvæmdastjóri rekstrarlausna hjá Skýrr og staðgengill forstjóra um níu ára skeið og stýrði þar hópi 60-100 starfsmanna. Þorvaldur var framkvæmdarstjóri Verne Holding ehf. 2008 og 2009 og hefur víðtæka þekkingu á gagnaverum af þeim vettvangi. Síðustu ár hefur Þorvaldur unnið að ráðgjöf hjá eigin fyrirtæki og fyrir gagnaflutningsfyrirtækið Emerald Networks.

Skúli Skúlason, framkvæmdastjóri þjónustusviðs, er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík 2004 og með Meistarapróf í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands 2010. Hann hóf störf hjá Orkuveitunni 2010. Áður starfaði Skúli við rekstrarráðgjöf hjá Capacent og sem fjármálastjóri hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur.
 
         
Kristjana Kjartansdóttir
Gæðastjóri
Hólmfríður Sigurðardóttir
Umhverfisstjóri
Hildur Ingvarsdóttir
Öryggisstjóri
Elín Smáradóttir
Lögfræðingur
Eiríkur Hjálmarsson
Upplýsingafulltrúi

 

Kristjana Kjartansdóttir, gæðastjóri, tók B.Sc. próf frá Tækniháskólanum í Óðinsvéum 1987, lauk uppeldis- og kennslufræði frá Háskóla Íslands 1995 og er þessa dagana að ljúka meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá HÍ. Kristjana var áður í ráðgjafastarfi hjá 7.is, fyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf í gæðamálum og hefur samhliða starfinu stundað meistaranám í stjórnun og stefnumótun. Hún er ekki ókunnug orkugeiranum því á síðustu árum hefur Kristjana unnið að innleiðingu gæðakerfis fyrir Landsvirkjun Power auk verkefna fyrir olíuborpalla Statoil, Hydro og Petrobas.

Hólmfríður Sigurðardóttir, umhverfisstjóri, er líffræðingur frá Háskóla Íslands 1983 með Meistarapróf í jarðvegslíffræði frá Árósaháskóla í Danmörku auk MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hólmfríður á langan feril að baki á sviði umhverfismála en hún starfaði m.a. á Skipulagsstofnun um 12 ára skeið, lengst af sem sviðsstjóri umhverfissviðs.

Hildur Ingvarsdóttir, öryggisstjóri, er vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands 1999 og með Meistarapróf í vélaverkfræði frá University of British Columbia. Hildur hóf störf hjá Orkuveitu Reykjavíkur árið 2005. Hún hefur starfað sem verkefnisstjóri lengst af starfstíma sínum hjá Orkuveitunni og stýrt þar stórum og flóknum verkefnum, einkum í fráveitu.

 

Elín Smáradóttir, lögfræðingur Orkuveitu Reykjavíkur, útskrifaðist úr lagadeild Háskóla Íslands árið 1994 og hlaut héraðsdómslögmannsréttindi árið 1996. Hún starfaði hjá Skipulagsstofnun á árunum 1994-2003 og síðan hjá Orkustofnun til ársins 2008 þegar hún gekk til liðs við Orkuveitu Reykjavíkur.

Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi OR, lauk blaðamannaprófi frá Ohio University 1989 og starfaði við ýmsa fjölmiðla í um 15 ár. Hann var aðstoðarmaður borgarstjórans í Reykjavík 2003 til 2006 þegar hann var ráðinn til OR. Eiríkur lauk meistaraprófi  í verkefnastjórnun frá Verkfræðideild Háskóla Íslands (MPM) vorið 2008.