Starfsmannastefnan

Starfsmannastefna Orkuveitu Reykjavíkur er viðmið um aðgerðir og reglur í starfsmannamálum.
Starfsmannastjóri er ábyrgur fyrir því að stefnunni  verði framfylgt.

1. Ábyrgð og skyldur starfsmanna

Stjórnendur og starfsfólk Orkuveitunnar eiga að þjóna markmiðum fyrirtækisins og bera sameiginlega ábyrgð á að veita sem besta þjónustu og tryggja að langtímamarkmiðum sé náð.

Stjórnendum ber að tileinka sér góða og nútímalega stjórnunarhætti sem m.a. felast í jákvæðu viðhorfi til samstarfsmanna og virku upplýsingastreymi.  Þeir skulu jafnan leitast við að hafa samráð við starfsmenn sína um málefni vinnustaðarins er þá varða og beita sér fyrir sem víðtækastri sátt um þau.

Stjórnendur eiga að vinna að þeim markmiðum sem sett hafa verið en jafnframt eiga þeir að gera starfsmönnum kleift að taka framförum bæði faglega og sem einstaklingar.  Viðleitni starfsmanna til að auka hæfni sína er þeim besta tryggingin fyrir starfsöryggi.

Æskilegt er að starfsmenn leggi rækt við eigin heilsu og ástundi heilbrigt líferni.

Starfsmenn skulu leitast við að laga sig að breyttum kröfum, sem starf þeirra gerir til þeirra, svo sem vegna tæknilegrar og faglegrar þróunar og vera reiðubúnir að þjálfa sig til og taka á sig ný og breytt verkefni.

Starfsmenn eiga að kynna sér og fylgja gæðastefnu fyrirtækisins, stefnu í öryggis-, heilbrigðis- og vinnuumhverfismálum, umhverfisstefnu og matvælaöryggisstefnu.

2. Jafnréttismál

Óheimilt er að mismuna starfsfólki eftir aldri, kynferði, kynþætti, stjórnmálaskoðunum eða trúarskoðunum.

3. Ráðningar, tilfærslur í starfi og starfslok

Orkuveita Reykjavíkur leitast ávallt við að hafa á að skipa hæfu, áhugasömu og heiðarlegu starfsfólki.  Ráðningar byggjast á hæfileikum, menntun og reynslu þess sem ráðinn er og hæfni viðkomandi til að inna starfið  af hendi.  Gengið skal frá ráðningu með formlegum hætti.  Orkuveitan leitast við að ráða starfsmenn á mismunandi aldri, til að tryggja fjölþætta reynslu, mismunandi bakgrunn og jafna aldursdreifingu starfsmanna. 

Orkuveita Reykjavíkur vill skapa starfsmönnum möguleika á samfelldum starfsferli.  Það er gert með því að hvetja starfsmenn til að auka frumkvæði sitt og hæfni til að takast á við ný verkefni og flytjast á milli starfa. Orkuveitan leitast ávallt við að veita eigin starfsfólki sömu möguleika og utanaðkomandi við ráðningar í stjórnunarstörf.

Starfsmenn Orkuveitunnar skulu láta af störfum eigi síðar en í lok þess mánaðar sem þeir verða 70 ára.

4. Starfslýsingar

Stefnt er að því að  starfslýsingar séu til fyrir öll störf  strax við ráðningu.  Starfslýsingar skulu endurskoðaðar með reglubundnum hætti. 

 

5. Kynning og fræðsla nýrra starfsmanna

Orkuveita Reykjavíkur skal veita nýjum starfsmönnum, sem koma til starfa, grunnþekkingu og fræðslu um  uppbyggingu og deildir fyrirtækisins og starfsfræðslu eftir því sem við á hverju sinni.  Stefnt skal að því að formleg starfsþjálfun sé skilgreind og nýtt til þess að tryggja að nýr starfsmaður nýtist að fullu í starfi eins fljótt og auðið er. 

6. Starfsmannasamtöl

Orkuveita Reykjavíkur ætlast til að hver starfsmaður fái notið hæfileika sinna.   Lögð er áhersla á faglega þróun starfsmanna með það að leiðarljósi að þeir geti betur sinnt starfi sínu, sjálfum sér og fyrirtækinu til hagsbóta.
Litið er á starfsmannasamtöl sem aðferð til að fá fram óskir og athugasemdir starfsmanna varðandi vinnustaðinn og koma skilaboðum til starfsmanns um óskaða frammistöðu. .   Starfsmannasamtöl skulu líka leiða í ljós óskir starfsmanns um starfsþróun sem reynt verður að uppfylla eftir því sem aðstæður leyfa.  
Sérhver starfsmaður  skal eiga kost á starfsmannasamtali að minnsta kosti einu sinni á ári.

7. Starfsþróun og símenntun

Orkuveita Reykjavíkur vill tryggja hæfni starfsmanna sinna og þar með fyrirtækisins alls með því að gefa starfsmönnum kost á símenntun.   Með því móti er þess vænst að skapa megi sveigjanlegra fyrirtæki sem er opið fyrir nýsköpun.  .  Starfsþróun er á ábyrgð starfsmanns og stjórnanda, hún felst í, þátttöku starfsmanns í starfsmannasamtölum, símenntun, flutningi til í starfi og samvinnu.

Orkuveita Reykjavíkur stefnir að því að starfsmenn eigi kost á símenntun innan sem utan fyrirtækisins  til að auka þekkingu sína og faglega hæfni sem nýtist í starfi.

Fyrirtækið stefnir að því að byggja lærdóm inn í starfsemi fyrirtækisins. 

8. Samskipti

Orkuveita Reykjavíkur keppir að því að skapa traust milli starfsmanna sinna og milli starfsmanna og viðskiptavina OR í öllum samskiptum með því að virða samskipta - og siðareglur fyrirtækisins.

Orkuveita Reykjavíkur vill stuðla að góðum starfsanda og að starfsmenn sýni samstarfsmönnum sínum og öðrum tilhlýðilega virðingu, umburðarlyndi og jákvætt viðmót.  
Orkuveitan styður við félagsstarf innan fyrirtækisins og stuðlar þannig að auknum tengslum milli starfsmanna í ólíkum einingum.  


9. Vinnuvernd og öryggismál

Vinnuumhverfi skal vera öruggt og heilsusamlegt eins og  kostur er og í samræmi við lög og reglugerðir um öryggi og aðbúnað á vinnustöðum.  Starfsmönnum skal gert mögulegt að fylgja þeim kröfum og reglum sem settar eru.   Starfsmönnum er skylt að fara að reglum og sýna gætni í starfi. Skýrt er kveðið á um hvernig brugðist skuli við óhöppum og hættuástandi. Starfsmönnum er skylt að taka þátt í áhættugreiningum ef eftir því er leitað og skulu með þeim hætti nýta þekkingu sína til þess að draga úr líkum á slysum og óhöppum. Leitast skal við að finna slysagildrur með því að skrá og meðhöndla tilvik þar sem liggur við slysum ekki síður en þar sem verða slys.   Ennfremur skal þess gætt út frá sjónarmiði vinnuverndar að yfirvinnu sé haldið innan hóflegra marka.

 

10. Kjaramál

Orkuveita Reykjavíkur vill hafa á að skipa hæfustu starfsfólki á sínu sviði og viðhalda hæfni þess, því starfsfólk er ein mikilvægasta auðlind fyrirtækisins.  Orkuveitan vill tryggja öruggt starfsumhverfi og efla trúnað og tryggð starfsmanna við fyrirtækið.  Orkuveitan stefnir að því að kjör starfsmanna Orkuveitunnar verði ekki lakari en hjá sambærilegum starfstéttum á almennum vinnumarkaði. 

Orkuveita Reykjavíkur vill taka tillit til ábyrgðar, frammistöðu og árangurs við ákvörðun kjara.

11. Viðvera og vinnutími

Orkuveita Reykjavíkur leggur áherslu á að starfsmenn séu stundvísir og við störf á þeim tíma sem samið hefur verið um og fram kemur í ráðningarsamningi.  Stjórnanda ber að fylgjast með mætingum, fjarveru á vinnutíma og brotthvarfi af vinnustað áður en reglulegum vinnudegi lýkur, kanna ástæður fyrir slíku og lagfæra.

Vinnutilhögun skal vera í samræmi við vinnutilskipun EES.


12. Notkun tóbaks og vímuefna

Orkuveita Reykjavíkur stefnir að því að halda vinnustaðnum frá notkun vímuefna af öllu tagi og að vinnustaðurinn verði reyklaus.  Orkuveita Reykjavíkur telur það vera gagnkvæma hagsmuni að vellíðan og heilbrigði starfsmanna sé haft að leiðarljósi.  Orkuveitan veitir starfsmönnum leiðbeiningar og aðstoð til að vinna úr vandamálum sem tengjast misnotkun vímuefna.

13. Starfið og fjölskyldan

Orkuveita Reykjavíkur leitast við að skapa starfsmönnum sínum aðstæður til að samræma kröfur starfs- og fjölskylduábyrgðar eins og kostur er.  Konum og körlum skal einnig gert kleift að minnka við sig vinnu tímabundið vegna fjölskylduábyrgðar, eins og t.d. umönnunar barna og sjúkra fjölskyldumeðlima.  Starfsmenn skulu eiga kost á hlutastörfum og sveigjanlegum vinnutíma eftir því sem kjarasamningar og aðstæður leyfa.

Orkuveita Reykjavíkur vill ýta undir skilning fjölskyldna starfsmanna á því starfi sem unnið er innan fyrirtækisins.  Jafnframt vill Orkuveitan vera leiðandi í starfskynningarstarfi fyrir komandi kynslóðir.