Starfshættir

Orkuveita Reykjavíkur er tengiliður milli náttúruauðlinda og samfélags. Ábyrg stefna gagnvart umhverfinu og samfélaginu eru því grunnþættir í starfsemi fyrirtækisins.

Stefna þessi hefur eftirfarandi gildi Orkuveitu Reykjavíkur að leiðarljósi:

  • Fyrirtækið er traust og starfar í sátt við umhverfið         
  • Það er sveigjanlegt, það lagar sig að breyttum aðstæðum         
  • Það er heiðarlegt, gagnsætt í vinnubrögðum og góður granni   
  • Það sýnir eldmóð, frumkvæði og er opið fyrir nýjungum         

Orkuveita Reykjavíkur kemur fram af heilindum, sýnir trúverðugleika og ábyrgð í starfsemi sinni. Fyrirtækið umgengst náttúruna, vörur sínar og viðskiptavini af virðingu. Fyrirtækið áttar sig á mikilvægi stuðnings við samfélagið sem það starfar í og hefur það að markmiði að litið verði til Orkuveitunnar sem trausts samstarfsaðila, sem eftirsóknavert sé að starfa með, og fyrirtækis sem sýnir í verki stuðning við samfélagið.

Samfélagsleg ábyrgð Orkuveitu Reykjavíkur tekur til eftirfarandi þátta;

  • gilda fyrirtækisins, stefnu þess og forystu,
  • umhverfisins,
  • framgangs þess á markaði,
  • gæðum þess sem vinnustaðar,
  • samskiptum við hagsmunaaðila,
  • framlögum þess til samfélagsins.


Orkuveita Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að stefna um samfélagslega ábyrgð sé höfð til hliðsjónar við rekstur fyrirtækisins og að allir starfsmenn séu meðvitaðir um í hverju hún felst. Þessu verður náð fram með;

  • markvissri kynningu innan fyrirtækisins,
  • innleiðingu mælikvarða og eftirfylgni í skorkorti fyrirtækisins,
  • gerð og birtingu árlegrar skýrslu um samfélagslega þátttöku Orkuveitunnar,
  • skipan stýrihóps sem umsjón hefur með framfylgd stefnunnar og þróun hennar.

Ábyrgð á stefnu Orkuveitu Reykjavíkur um samfélagslega ábyrgð hefur forstjóri. Hann hefur sér til fulltingis þverfaglegan stýrihóp sem hann skipar til tveggja ára í senn.


Starfsmenn Orkuveitunnar;

  • þekki stefnu fyrirtækisins um samfélagslega ábyrgð svo þeir geti tekið ákvarðanir í sínu daglega starfi með hliðsjón af henni,
  • geti leitað til stýrihóps OR um samfélagslega ábyrgð með ráðgjöf varðandi framfylgd stefnunnar.