Siðareglur
Við starfsfólk OR teljum að gagnkvæm virðing og traust séu mikilvægir þættir í að byggja upp traust fyrirtæki og öruggan og góðan vinnustað. Með því að virða hvort annað, verkefnin, viðskiptavininn og umhverfið tekst okkur að gera Orkuveituna að góðum þjóðfélagsþegni sem stuðlar að betra umhverfi.
Okkar leiðarljós í þeim efnum er:
1. Fyrirtækið
Við virðum þann trúnað sem okkur er sýndur með því að fela okkur mikilvæg verkefni.
Við virðum verkefnin og leysum þau eftir bestu getu.
Við virðum þær vinnureglur sem settar eru svo samhæfing starfa verði góð.
Við virðum eignir og verðmæti fyrirtækisins þar með talda hagnaðarmöguleika.
2. Viðskiptavinurinn
Við virðum okkar viðskiptavini.
Við virðum friðhelgi heimila sem við þurfum að fara inn á.
Við virðum þau vandamál sem viðskiptavinurinn kemur með til okkar og reynum að leysa úr þeim eftir bestu getu.
3. Samstarfsmenn
Við virðum verkefni samstarfsmanna okkar og gerum okkar til þess að þau megi leysa á skilvirkan og fljótan hátt.
Við virðum tíma samstarfsmanna okkar og reynum að láta okkar störf hafa sem minnsta truflun fyrir aðra.
Við virðum tilfinningar og einkalíf annarra þegar slík mál koma óhjákvæmilega inn á vinnustaðinn.
4. Umhverfið
Við virðum umhverfi okkar og gætum þess að ákvarðanir okkar og störf hafi jákvæð áhrif á náttúru landsins.
Við virðum mannvirki og sögulegar minjar og forðumst að valda spjöllum á þeim.
5. Samfélagið
Við virðum mikilvægi Orkuveitunnar í samfélaginu og leggjum okkur fram til að fyrirtækið verði virt og metið sem góður þjóðfélagsþegn.
Við virðum lög og reglugerðir.
6. Öryggismál
Við virðum öryggi okkar og samstarfsmanna okkar, förum að reglum og þjálfum okkur til að geta aðstoðað vinnufélaga og aðra í neyð.
Við virðum öryggi samborgara okkar og göngum þannig um vinnusvæði að ekki sé hætta af.
7. Einkalíf
Við virðum okkar eigin heilsu og gerum okkar til þess að halda henni.
Við virðum mannorð okkar og gerum ekkert það sem rýrir það eða mannorð fyrirtækisins.
Við virðum frítíma okkar og fjölskyldu og reynum í starfi okkar að stuðla að hóflegum vinnutíma allra.