Samskiptastefna

Allt starf Orkuveitu Reykjavíkur einkennist af virðingu fyrir umhverfinu og byggir fyrirtækið starfsemi sína á traustu og gagnsæu samstarfi við eigendur, starfsfólk, almenning, viðskiptavini og sveitarfélög sem það starfar í.
1. Samskipti við almenning og fjölmiðla
- OR veitir áreiðanlegar upplýsingar með aðgengilegum hætti um fyrirtækið, vörur þess, þjónustu og starfsemi.
- Starfsfólk OR sýnir jákvæðni og þjónustulund við upplýsingagjöf.
- Samskipti OR við fjölmiðla eru í höndum upplýsingafulltrúa. Annað starfsfólk á ekki að tjá sig um mikilsverð málefni fyrirtækisins í fjölmiðlum, nema þeim hafi verið falið það af forstjóra eða um það beðnir af upplýsingafulltrúa.
- OR hefur frumkvæði að upplýsingamiðlun við almenning og fjölmiðla um ákvarðanir, fyrirætlanir og ávinning sem hafa áhrif á samfélagið.
- OR bregst við röngum eða villandi upplýsingum í fjölmiðlum um fyrirtækið og starfsemi þess. Ætlast er til að starfsmenn láti upplýsingafulltrúa vita af atriðum í opinberri umræðu sem kunna að kalla á viðbrögð fyrirtækisins.
- OR veitir upplýsingar um viðbrögð vegna áfalla í rekstri og neyðarástands.
2. Innri upplýsingagjöf
- OR miðlar upplýsingum til alls starfsfólks um helstu ákvarðanir, fyrirætlanir og ávinning sem hafa áhrif á stefnu og rekstur fyrirtækisins.
- OR gerir starfsfólki fyrirtækisins kleift að koma ábendingum á framfæri.
- OR gætir þess að viðskiptaupplýsingar berist ekki milli einkaleyfis- og samkeppnishluta reksturs samstæðunnar.
3. Samskipti við hagsmunaaðila
- OR í heild, svið fyrirtækisins og/eða deildir, greina hagsmunaaðila sína eftir mikilvægi þeirra fyrir reksturinn og markmið hans.
- OR í heild, svið fyrirtækisins og/eða deildir hafa reglubundin samskipti við hagsmunaaðila samkvæmt samskiptaáætlunum, kynna sér áherslur þeirra og virða þær.
- OR ástundar gagnkvæm samskipti, leitar eftir tillögum og ábendingum, fylgist með viðhorfum almennings til fyrirtækisins og bregst við eftir því sem við á.
- OR kappkostar að veita mikilvægum hagsmunaaðilum innsýn í rekstur og markmið fyrirtækisins.
4. Starfsaðferðir, gæði og öryggi upplýsinga
- OR hagnýtir framsæknar og viðeigandi aðferðir við miðlun upplýsinga.
- OR ástundar vandaða og viðeigandi framsetningu áreiðanlegra upplýsinga og viðhefur vönduð vinnubrögð við vistun og varðveislu þeirra.
- OR ástundar upplýsingavernd s.s. vegna hagsmuna fyrirtækisins, starfsmanna og viðskiptavina svo og vegna laga og reglugerða.
- OR virðir trúnaðarupplýsingar um viðskiptavini.