Jafnréttisáætlun
Orkuveita Reykjavíkur leggur metnað sinn í að gæta jafnréttis milli starfsmanna fyrirtækisins með því að hafa eftirfarandi atriði að leiðarljósi:
- Launajafnrétti kvenna og karla.
- Jafnara hlutfall kynja innan Orkuveitunnar og einstakra hópa/sviða/deilda.
- Fjölgun kvenna í ábyrgðar- og stjórnunarstöðum.
- Að auðvelda samræmingu fjölskylduábyrgðar og starfs.
- Að við stefnumótun og stærri ákvörðunartökur sé tekið mið af jafnréttissjónarmiðum.
- Aukin jafnréttisvitund starfsmanna OR
- Að Orkuveitan sé þekkt sem jafnréttismiðað fyrirtæki.
- Að hjá Orkuveitunni sé kynbundin- og kynferðisleg áreitni ekki liðin.
Markmið í jafnréttismálum árin 2010-2013:
1. Yfirsýn og eftirfylgni jafnréttismála hjá OR
Orkuveita Reykjavíkur skal fylgja eftir jafnréttisáætlun, hafa yfirsýn yfir jafnréttismál og sjá til þess að fyrirtækið fari að lögum nr. 2008/10 (Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla) með því að starfrækja jafnréttisnefnd. Jafnréttisnefndina skipa 5 starfsmenn OR, bæði konur og karlar.
a. Virk jafnréttisnefnd skal starfa hjá OR sem skal vera virk og funda mánaðarlega í janúar-maí og september-desember ár hvert. Nefndin skal einnig koma saman á öðrum tímum ef þörf er á.
Ábyrgð: Jafnréttisnefnd
Mælikvarði: 9 fundir á ári.
b. Nefndin skal skila skýrslu árlega um störf sín sem sýnir stöðu og þróun jafnréttismála hjá fyrirtækinu og hvernig einstaka markmið jafnréttisáætlunar standa.
Ábyrgð: Jafnréttisnefnd
Mælikvarði: Skýrsla árlega.
2. Jöfn laun kynja í jafnverðmætum störfum
Orkuveita Reykjavíkur skal greiða konum og körlum jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
a. Jöfn laun skulu staðfest með launakönnun. Komi fram óútskýrður launamunur skal grípa til viðeigandi aðgerða.
Ábyrgð: Jafnréttisnefnd/Launanefnd
Mælikvarði: Fá óháðan aðila árin 2010 og 2012 til að meta hvort bæði kyn fái jöfn laun og kjör fyrir jafnverðmæt störf. Í kjölfarið skal gera aðgerðaráætlun til að leiðrétta mismun ef hann er fyrir hendi.
b. Orkuveitan skal stefna að því að staðfesta jöfn laun með vottun samkvæmt nýjum staðli um jöfn laun kynjanna, s.k. jafnlaunastaðli.
Ábyrgð: Jafnréttisnefnd/Gæðamál
Mælikvarði: Úttekt löggilds vottunaraðila á jafnlaunastaðli.
3. Auka hlutfall þess kyns sem er í minnihluta á tilteknum starfssviðum
Þegar ráðið er í starf skal reynt að stuðla að jafnari kynjaskiptingu innan viðkomandi starfsgreinar ef hæfustu umsækjendurnir eru af mismunandi kyni og metnir jafnhæfir. Á þeim sviðum þar sem annað kynið er í afgerandi minnihluta skal hvetja það kyn til þess að sækja um starf sem er auglýst. Markmiðið er að ná lágmarksfjölda af hvoru kyni í hverja starfsgrein eða deild. Langtímamarkmið er að hlutfall hvors kyns um sig hjá Orkuveitunni sé ekki minna en 40% (er 29% árið 2009).
Langtímamarkmið (10 ár) einstakra starfshópa:
- Stjórnendur - a.m.k. 35% af hvoru kyni (er 25% árið 2009)
- Sérfræðingar - a.m.k. 35% af hvoru kyni (er 24% árið 2009)
- Skrifstofufólk - a.m.k. 40% af hvoru kyni (er 31% árið 2009)
- Iðnaðarmenn, vélfræðingar og tölvutæknar - a.m.k. 10% af hvoru kyni (er 4% árið 2009)
- Ósérhæft starfsfólk - a.m.k. 40% af hvoru kyni (er 33% árið 2009)
Í ársskýrslum jafnréttisnefndar skal koma fram hversu margir af hvoru kyni vinni í viðkomandi deild/sviði/starfsgrein og hvort kynið hafi verið ráðið ef um slíkt er að ræða.
a. Kynna Orkuveituna fyrir nemendum sem spennandi vinnustað.
Ábyrgð: Deildarstjóri starfsþróunar
Mælikvarði: Bjóða konum í tækninámi til kynningar á starfsemi OR. Einnig að kynna OR í grunn- og framhaldsskólum.
b. Hvetja konur til tæknináms annars vegar í verk- og tæknifræði í þeim greinum sem konur eru í miklum minnihluta og tengjast kjarnastarfssemi OR, og hins vegar í iðngreinum og vélfræði. Þetta skal gert með því að veita styrki árlega til kvenna í viðkomandi námi.
Ábyrgð: Jafnréttisnefnd
Mælikvarði: Styrkir veittir árlega.
c. Þar sem verulegur munur er á hlutföllum kynja í deild eða sviði, skal jafnréttisnefnd halda fund með viðkomandi yfirmönnum og leita leiða til að bæta hlutfall kynja.
Ábyrgð: Jafnréttisnefnd
Mælikvarði: Fundir með yfirmönnum viðkomandi deilda.
d. Ráða í sumarstörf innan Orkuveitunnar það kyn sem er í minnihluta í viðkomandi starfsgrein eða sviði og að heildarfjöldi sumarstarfsmanna sé um 50% af hvoru kyni.
Ábyrgð: Deildarstjóri starfsþróunar
Mælikvarði: 50% sumarstarfsmenn af hvoru kyni.
4. Fjölga konum í ábyrgðar- og stjórnunarstöðum
Auka skal hlutfall kvenna í stjórnunarstöðum (framkvæmdastjórar/sviðsstjórar/deildarstjórar) hjá OR í 30% á næstu 5 árum (er 21% árið 2009).
a. Hvetja skal konur hjá OR til þess að sækja námskeið/nám/þjálfun sem eykur stjórnunarþekkingu þeirra.
Ábyrgð: Jafnréttisnefnd
Mælikvarði: Námskeið til styrktar konum árin 2011 og 2013.
b. Nota fjölbreyttari aðferðir við ráðningar og þjálfa konur sérstaklega í ákveðnar stöður.
Ábyrgð: Deildarstjóri starfsþróunar
Mælikvarði: Beiting mismunandi aðferða við ráðningar.
5. Gera starfsmönnum kleift að samræma vinnu og fjölskyldulíf
Leitast skal við að bjóða upp á sveigjanleika í starfi eða fjarvinnslu vegna fjölskylduaðstæðna og skoða þá sérstaklega stöðu karla.
a. Í vinnustaðagreiningu meðal starfsmanna skal kanna hvort starfsmenn telji að þeir njóti sveigjanleika í starfi, til að mæta þörfum fjölskyldu.
Ábyrgð: Deildarstjóri starfsþróunar
Mælikvarði: Spurning í vinnustaðagreining 2011 og 2013.
b. Á þeim sviðum þar sem lítill sveigjanleiki fylgir störfum, skal jafnréttisnefnd hitta viðkomandi yfirmenn og leita leiða til að auka sveigjanleika.
Ábyrgð: Jafnréttisnefnd
Mælikvarði: Fundir með yfirmönnum viðkomandi deilda.
6. Auka jafnréttisvitund starfsmanna OR
Til þess að auka skilning starfsmanna á mikilvægi jafnréttis kynjanna og ýta undir menningu byggða á jafnrétti skal gera alla starfsmenn meðvitaða um stöðu og markmið fyrirtækisins í jafnréttismálum.
a. Jafnréttisnefnd kynnir ársskýrslu nefndarinnar á sviðsstjórafundi ár hvert og jafnréttisáætlun annað hvert ár.
Ábyrgð: Jafnréttisnefnd
Mælikvarði: Fundargerðir sviðsstjórafundar.
b. Við útgáfu nýrrar jafnréttisáætlunar skal halda jafnréttiskynningu þar sem jafnréttisnefnd kynnir áætlunina fyrir starfsmönnum á starfsmannafundum sem og stöðu jafnréttismála hjá fyrirtækinu.
Ábyrgð: Jafnréttisnefnd
Mælikvarði: Fundur með starfsmönnum.
c. Nýta vinnustaðagreiningu til að fá fram viðhorf starfsmanna um jafnréttismál.
Ábyrgð: Jafnréttisnefnd
Mælikvarði: Spurningar í vinnustaðagreiningu 2011 og 2013.
d. Stjórnendur fái fræðslu í jafnréttismálum.
Ábyrgð: Jafnréttisnefnd
Mælikvarði: Kynning eða námskeið annað hvert ár.
7. Kynna Orkuveitu Reykjavíkur sem jafnréttismiðað fyrirtæki
Orkuveitan stefnir að því að laða til sín starfsfólk sem vill starfa í anda jafnréttis og því skal kynna hana sem jafnréttismiðað fyrirtæki.
a. Nýta almennt kynningarefni OR til að kynna stefnu og stöðu jafnréttismála hjá fyrirtækinu
Ábyrgð: Sala og markaðsmál
Mælikvarði: Kynningarefni um jafnréttismál í bæklingum, heimasíðu og á auglýsingum frá fyrirtækinu.
b. Orkuveitan kynni árangur og metnaðarfulla jafnréttisáætlun fyrir Jafnréttisráði sem m.a. veitir árlega viðurkenningu til fyrirtækja.
Ábyrgð: Jafnréttisnefnd
Mælikvarði: Kynning fyrir Jafnréttisráð árlega.
4. Hjá Orkuveitunni er kynbundin- og kynferðisleg áreitni ekki liðin
Orkuveita Reykjavíkur vill tryggja starfsmönnum sínum gott starfsumhverfi og sjá til þess að kynbundin- og kynferðisleg áreitni viðgangist ekki.
a. Í rekstrarhandbók sé til leiðbeiningaskjal um hvernig skuli bregðast við ef upp koma mál tengd kynbundinni- og kynferðislegri áreitni.
Ábyrgð: Starfsmannastjóri
Mælikvarði: LBJ-070.
b. Kynningar og námskeið fyrir stjórnendur um áreitni.
Ábyrgð: Starfsmannastjóri
Mælikvarði: Námskeið fyrir stjórnendur á 5 ára fresti.