Heildarstefna

1. Hlutverk

Orkuveita Reykjavíkur er orku- og veitufyrirtæki sem á hagkvæman og sjálfbæran hátt tryggir lífsgæði og hæfni samfélagsins. Orkuveita Reykjavíkur er þjónustufyrirtæki á orkusviði í eigu sveitarfélaga sem hefur það hlutverk að veita íbúum og atvinnulífi grunnþjónustu með veiturekstri.

Kjarnastarfsemi
Orkuveita Reykjavíkur framleiðir, dreifir og selur heitt vatn og kalt, rafmagn og annast uppbyggingu og rekstur fráveitu og gagnaveitu. Orkuveita Reykjavíkur selur einnig ráðgjöf á orkusviði.

Hagsmunaaðilar
Fyrirtækið byggir starfsemi sína á traustu og gagnsæu samstarfi við eigendur, starfsfólk, almenning, viðskiptavini og sveitarfélög sem það starfar í. Orkuveita Reykjavíkur skilar eigendum sínum arði af starfseminni með ábyrgum og hagkvæmum rekstri.

Starfssvæði
Fyrirtækið starfar fyrst og fremst á Íslandi. Starfssvæðið er allt landið en áherslan er á Suðvesturland. Ný tækifæri eru skoðuð út frá arðsemi og með tilliti til þjónustustigs. Áhersla er einnig lögð á að selja þekkingu og reynslu til þeirra landa sem hafa arðbær tækifæri í jarðvarma. Orkuveita Reykjavíkur er jákvæð gagnvart þróunarsamvinnu. Fyrirtækið gerir ríkar siðferðilegar og umhverfislegar kröfur til allra verkefna sem fyrirtækið tekur þátt í erlendis, engu síður en á Íslandi, og tekur afstöðu til álitamála í þeim efnum á vettvangi stjórnar.

Viðskiptavinir
Orkuveita Reykjavíkur þjónar heimilum á veitusvæði sínu, fyrirtækjum, stofnunum og stórnotendum. Orkuveita Reykjavíkur tryggir fullnægjandi gæði og afhendingaröryggi á vörum sínum og þjónustu. Fyrirtækið leggur áherslu á sanngjarna verðlagningu fyrir almenning, í samanburði við önnur orkufyrirtæki innanlands og erlendis, og leitast jafnframt við að hámarka nýtingu auðlinda fyrirtækisins og hjá viðskiptavinum.

2. Framtíðarsýn

Að vera í fararbroddi orku- og veitufyrirtækja sem leiða samfélagið inn í sjálfbæra framtíð. Orkuveita Reykjavíkur er til fyrirmyndar í sjálfbærri nýtingu auðlinda sinna og samfélagsins í heild. Orkuveita Reykjavíkur byggir á sjálfbærum orkugjöfum og hefur umhverfis-, samfélags- og rekstrarleg sjónarmið að leiðarljósi í starfsemi sinni.

Árangur og áhættudreifing
Almenningur er í forgangi um aðgengi að orku og auðlindum fyrirtækisins en jafnframt þjónar fyrirtækið fjölbreyttum hópi stærri og smærri notenda. Fyrirtækið býr við öflugt sjóðstreymi og góða áhættudreifingu.

Leiðandi þekkingarfyrirtæki
Orkuveita Reykjavíkur er öflugasta orku- og veitufyrirtækið á Íslandi. Fyrirtækið er í fararbroddi rannsókna á heimsvísu í sjálfbærri nýtingu orkuauðlinda. Orkuveita Reykjavíkur miðlar með arðsömum hætti sérþekkingu og reynslu sem byggð hefur verið upp innan fyrirtækisins jafnt innan lands sem utan.

Grænir innviðir
Orkuveita Reykjavíkur stuðlar að nýsköpun tengdri kjarnastarfsemi fyrirtækisins með áherslu á uppbyggingu innviða samfélagsins. Orkuveita Reykjavíkur er þannig virkur þátttakandi í nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum.

Sjálfbær starfsemi
Orkuveita Reykjavíkur er til fyrirmyndar þegar kemur að sjálfbærni. Fyrirtækið er þekkt fyrir gott jafnvægi á milli arðsemi í rekstri, ábyrgrar nýtingar auðlinda og framlags til samfélagsins.

3. Lykiláherslur

Orkuveita Reykjavíkur leggur áherslu á sjálfbæra starfsemi. Ákvarðanir eru teknar út frá þeirri forsendu að þær séu arðsamar í efnahagslegum skilningi til lengri tíma litið auk þess sem ákvarðanir eru teknar með áherslu á umhverfið, ábyrga nýtingu auðlinda og ábyrgð gagnvart samfélaginu.

Umhverfisleg ábyrgð
Virðing skal ríkja í allri umgengni við umhverfið og full ábyrgð viðhöfð gagnvart nýtingu auðlinda.

Samfélagsleg ábyrgð
Traust, ábyrgt samstarf og gagnsæi ríkir gagnvart eigendum, starfsfólki, almenningi, viðskiptavinum og sveitarfélögum sem fyrirtækið starfar í.

Efnahagsleg ábyrgð
Arðsemi í rekstri og hagkvæmar lausnir fyrir viðskiptavini eru forsendur heildarárangurs.

Mannauður
Árangur næst með metnaðarfullu, lipru og ánægðu starfsfólki sem býr við jafnrétti, góð starfsskilyrði og sanngjörn kjör.

Áreiðanleg þjónusta
Þjónusta skal vera áreiðanleg, fjölbreytt og af skilgreindum gæðum á hverjum tíma.

Framsækni
Nýsköpun, hugmyndaauðgi og hagnýtar umbætur skulu einkenna starfsemi fyrirtækisins.

4. Meginmarkmið

Í takti við hlutverk Orkuveitu Reykjavíkur, framtíðarsýn og lykiláherslur ræðst árangurinn af frammistöðu fyrirtækisins gagnvart umhverfinu, samfélaginu og hagkvæmni rekstrarins.

Umhverfismarkmið
Orkuveita Reykjavíkur er í fararbroddi í umhverfismálum á öllum sviðum, stenst allar opinberar kröfur og vinnur að því að góð sátt ríki um virkjanir og vinnusvæði.

Helstu mælikvarðar:

  • Sjálfbær notkun auðlinda á vatnsverndarsvæðum, lág- og háhitasvæðum.
  • Útstreymi gróðurhúsalofttegunda og lágmörkun þess.
  • Landgræðsla og skógrækt til að auka landgæði og kolefnisbindingu.
  • Magn brennisteinsvetnis og hlutfall hreinsunar.
  • Magn úrgangs og hlutfall endurvinnslu.
  • Nýting afurða.
  • Hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum.

Samfélagsmarkmið
Orkuveita Reykjavíkur er eftirsóknarverður samstarfsaðili sem kemur fram af heilindum og ábyrgð í starfsemi sinni. Fyrirtækið sýnir í verki stuðning við samfélagið með áherslu á þau svið sem það starfar á.

Helstu mælikvarðar:

  • Samkeppnishæft verð fyrir almenning í samanburði við önnur orku- og veitufyrirtæki.
  • Viðhorf hagsmunaaðila til fyrirtækisins og ímynd þess.
  • Kostnaðar- og ábatamat á framlögum til rannsókna.
  • Ávinningur af samfélagslegum verkefnum.
  • Fyrirtækið sem vinnustaður í fremstu röð á Íslandi.

Fjárhagsleg markmið
Orkuveita Reykjavíkur ætlar að ná framúrskarandi árangri í rekstri og standa fyllilega undir langtímaskuldbindingum og arðsemiskröfu eigenda.

Helstu mælikvarðar:

  • EBITDA í hlutfalli af veltu 50%.
  • Eiginfjárhlutfall að lágmarki 30% að meðaltali yfir 5 ára tímabil.
  • Arðsemi (WACC) 7%.
  • Arðsemi (WACC) í rekstri eftir miðlum:
    - Heitt vatn 7%.
    - Kalt vatn 5%.
    - Fráveita 5%.
  • Rafmagn
  • - Framleiðsla og sala 7%.
    - Dreifing í samræmi við heimildir raforkulaga.
  • Gagnaveita 7%.
  • Arðsemi eigin fjár í nýjum verkefnum á samkeppnismarkaði.
    - Raforka til stórnotenda 15%.
    - Raforka á almennan markað 10%.
    - Önnur verkefni 15%.
  • Veltufjárhlutfall ekki lægra en 0,5.
  • Hlutfall handbærs fjár frá rekstri og meðalstöðu skulda.
  • Lánhæfiseinkunn fyrirtækisins og lánskjör.
  • Gengisáhætta fyrirtækisins, þ. e. áhrif gengisþróunar á rekstur og efnahag.

5. Grunngildi

Allt starf Orkuveitu Reykjavíkur einkennist af virðingu gagnvart umhverfinu og samfélaginu sem það starfar í. Reksturinn byggir á hagsýni, árangursríkum lausnum og sveigjanleika. Orkuveita Reykjavíkur er traust fyrirtæki með starfsfólk sem er þekkt fyrir heiðarleika og eldmóð í störfum sínum.

Megingildi:

  • Virðing.
  • Hagsýni.
  • Heiðarleiki.
  • Eldmóður.
  • Traust.
  • Sveigjanleiki.