Gæðastefnan

Orkuveitan leggur höfuðáherslu á gæði þeirrar vöru og þjónustu sem fyrirtækið innir af hendi. Fyrirtækið hefur gæði, áreiðanleika og arðsemi að leiðarljósi til að tryggja árangursríkt starf.

Orkuveitan gerir sér grein fyrir mikilvægi þess að vernda auðlindir þjóðarinnar og tryggja eins og kostur er sjálfbæra nýtingu þeirra.

Starfrækt er gæðaráð sem samhæfir og stjórnar aðgerðum á sviði gæðamála. Áhersla er lögð á að starfsmenn þekki og tileinki sér gæðastefnu fyrirtækisins.

Gæðastefna Orkuveitu Reykjavíkur er:

  • Að vera traust og ábyrgt fyrirtæki, sem veitir viðskiptavinum sínum aðgang að nægri orku og vatni með fullnægjandi gæðum og afhendingaöryggi.
  • Að veita viðskiptavinum sínum hraða, sveigjanlega og hagkvæma þjónustu.
  • Að uppfylla kröfur um hollustu, öryggi og umhverfi.
  • Að vinna eftir ströngum reglum við kaup og notkun á vörum og þjónustu.
  • Að á virkjanasvæðum og öðrum viðkvæmum svæðum séu að öðru jöfnu ekki notuð efni eða verklag sem rýrt gæti gæði auðlindanna.
  • Að fara að kröfum staðalsins ISO 9001 og bæta stöðugt virkni gæðastjórnunarkerfisins.