Stefna og stjórnun

Orkuveita Reykjavíkur er sjálfstætt þjónustufyrirtæki, sem kappkostar að veita viðskiptavinum sínum sem besta mögulega þjónustu með sem hagkvæmustum hætti fyrir viðskiptavini og fyrirtækið sjálft. Fyrirtækið rekur virka starfsmanna- og jafnréttisstefnu. Öll starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur nýtur óháðrar vottunar í umhverfismálum, gæðamálum og öryggismálum auk þess sem vatnsveita og fráveita njóta sérstakrar vottunar. Orkuveita Reykjavíkur hlaut Kuðunginn, Umhverfisverðlaun umhverfisráðuneytisins, fyrir árið 2004.

Orkuveita Reykjavíkur hefur einsett sér að vera í fararbroddi í góðri umgengni við umhverfið, sérstaklega í nýtingu landsins gæða, enda liggja hagsmunir Orkuveitu Reykjavíkur í því að umhverfismál séu forgangsmál í allri starfsemi fyrirtækisins.

Í Skipuriti Orkuveitu Reykjavíkur eru upplýsingar um stjórn, lykilstjórnendur, svið og deildir.
 

Við stofnun árið 1999 samanstóð fyrirtækið af Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Reykjavíkur, Akranesveitu, Andakílsárvirkjun og Hitaveitu Borgarness. Rætur þess má rekja til áranna 1909, þegar vatnsveita var stofnuð í Reykjavík, 1921 þegar Rafstöðin við Elliðaár varð upphaf Rafmagnsveitu Reykjavíkur og 1930, þegar fyrstu húsin í Reykjavík voru tengd hitaveitu úr Þvottalaugunum í Laugardal. Starfssvæði Orkuveitu Reykjavíkur hefur stækkað umtalsvert og nær nú til Suður- og Vesturlands auk höfuðborgarsvæðisins.

 

Á höfuðborgarsvæðinu rekur Orkuveita Reykjavíkur stærstu jarðhitaveitu í heimi en að auki 16 smærri veitur á sunnan- og vestanverðu landinu, frá Hvolsvelli í austri til Grundarfjarðar í vestri. Umfangsmest er framleiðsla heits vatns á háhitasvæðinu á Nesjavöllum, 300 MWth, en á fjölda lághitasvæða eru samtals framleidd 600 MWth. Áætluð framleiðsla heits vatns á nýjasta svæðinu á Hellisheiði er 400 MWth. Hitaveitur fyrirtækisins þjónuðu tveimur af hverjum þremur íbúum landsins árið 2005.

 

Orkuveita Reykjavíkur hóf árið 1998 rafmagnsframleiðslu á Nesjavöllum samhliða heitavatnsframleiðslunni. Uppsett afl virkjunarinnar er 120 MW. Auk þess rekur Orkuveita Reykjavíkur tvær vatnsaflsvirkjanir og eina stöð er brennir hauggasi frá sorpurðun. Samanlagt afl þeirra er 12 MW en uppsett afl Hellisheiðarvirkjunar fullgerðrar verður 303 MWel.

 

Orkuveita Reykjavíkur framleiðir rafmagn til heimilisnota og fyrir atvinnulífið og selur eigin framleiðslu og orku keypta í heildsölu af Landsvirkjun á samkeppnismarkaði. Raforkudreifing Orkuveitu Reykjavíkur nær til liðlega helmings landsmanna í sex sveitarfélögum við Faxaflóa.

Orkuveita Reykjavíkur rekur 13 vatnsveitur á starfssvæði sínu auk þess að selja neysluvatn í heildsölu til þriggja að auki, samtals til meira en helmings þjóðarinnar.

 

Meginatriði í þátttöku Orkuveitu Reykjavíkur í umsjón innviða sjálfbærra samfélaga er rekstur umhverfisvænna fráveitna. Orkuveita Reykjavíkur á fráveitur í sjö misstórum byggðarlögum og rekur dælustöðvar fyrir tvö sveitarfélög til viðbótar. Alls þjónar Orkuveitan liðlega helmingi þjóðarinnar í fráveitumálum.

 

Orkuveita Reykjavíkur hefur byggt upp verðmætt gagnaflutningskerfi, sem heimili og fyrirtæki á suðvesturhorninu hafa notið góðs af.

Orkuveita Reykjavíkur nýtur arðs af sérþekkingu fyrirtækisins á nýtingu vistvænna orkugjafa með þátttöku í verkefnum á Íslandi og erlendis, ýmist á eigin spýtur eða í samstarfi við aðra.