Staðlar og gæðavottun
Orkuveita er gæðavottað fyrirtæki og starfar í samræmi við alþjóðlega staðla.

ISO 9001 - Alþjóðlegur gæðastaðall. Orkuveitan hefur innleitt gæðakerfi sem tekur á öllum þáttum starfsemi fyrirtækisins. Gæðakerfið er vottað af óháðum aðila og er tekið út af sama aðila tvisvar á ári.

ISO 14001 - Alþjóðlegur umhverfisstjórnunarstaðall. Samkvæmt vottuninni er öllum umhverfismálum fyrirtækisins stýrt. Kerfið er tekið út tvisvar á ári af vottunaraðila.

OHSAS 18001 - Alþjóðlegt vinnuöryggisstjórnunarkerfi. Með kerfinu er tekið á málefnum er varða vinnuöryggi og heilsuvernd. Kerfið er tekið út tvisvar á ári.

HACCP/GÁMES - Alþjóðlegt matvælaeftirlitkerfi. Orkuveitan er stærsta matvælafyrirtæki landsins en neysluvatnsframleiðsla fyrirtækisins er skilgreind sem matvælaframleiðsla. Kerfið er vottað af heilbrigðisteftirliti viðkomandi sveitarfélags.

ISO - 27001 - Alþjóðlegur staðall um upplýsingaöryggi. Orkuveitan hefur innleitt kerfi vegna upplýsingaöryggis sem tekur á öllum þáttum starfsemi fyrirtækisins. Upplýsingaöryggisstjórnkerfið er vottað af BSI og er tekið út af sama aðila árlega.

Rafmagnsöryggisstjórnkerfi - Rafmagnsöryggisstjórnkerfi er lögbundið öryggiskerfi sem allar rafveitur verða að hafa til að mega starfa. Kerfið er vottað af Brunamálastofnun og er tekið út tvisvar á ári af óháðri skoðunarstofu.

EarthCheck (áður Green Globe) - Gestamóttökur virkjana Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði og Nesjavöllum hafa hlotið svokallaðan EarthCheck Bronze Benchmarked staðal sem er fyrsta stig vottunar frá alþjóðlega umhverfisstjórnunar- og vottunarfyrirtækinu EC3 Global. EC3 Global stendur að vottun á heimsvísu fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og stofnanir sem vinna að sjálfbærni. EarthCheck vottunin er m.a. þróuð í samvinnu við World Travel & Tourism Council og byggist á því að fyrirtæki innan eða tengd ferðaþjónustugeiranum sýni fram á stöðugar umbætur í umhverfismálum.