Lesa frétt

Útboð vegna nýrrar vatnsveitu í Reykholtsdal

27.7.2012 Nú styttist í að framkvæmir hefjist við nýja vatnsveitu fyrir Reykholt og Kleppjárnsreyki í Borgarfirði. Framkvæmdir verða boðnar út nú um helgina.

Eftir ítarlega leit að fullnægjandi vatnsbóli fyrir Reykholt og Kleppjárnsreyki, hefur verið ákveðið að virkja vatnsból við mynni Rauðsgils og leggja 4,4 kílómetra langa aðveitulögn milli Rauðsgils og Reykholts. Þá verður byggð dælu- og stjórnstöð í grennd við vatnstökustaðinn.

Öll leyfi vegna framkvæmdarinnar liggja fyrir og verkútboð vegna lagnar aðveitulagnarinnar verður auglýst nú um helgina. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í byrjun september og verði lokið um næstu áramót.

Í þurrkatíðinni nú í sumar hefur þurft að aka vatni í tankbílum í Reykholt. Eftir að sýni reyndust ófullnægjandi í einu núverandi vatnsbóla hafa þeir flutningar verið auknir enn frekar. Nýja vatnsbólið á eitt og sér að geta að geta fullnægt þörfum viðskiptavina í Reykholti og á Kleppjárnsreykjum. Vatnsveitur þessara tveggja byggðarkjarna voru samtengdar fyrir nokkrum árum og hafa Reykhyltingar notið góðs af því.

Sér fyrir endann á vatnsskorti
Við Rauðsgil verður byggt lítið hús yfir dælu og stjórnbúnað. Starfsmenn OR munu annast framkvæmdir í Rauðsgili auk tenginga við aðveituæðina. Lagning hennar verður hinsvegar í höndum verktaka.

Það er von OR að þegar þessum framkvæmdum lýkur sjái fyrir endann á þeim erfiðleikum sem hafa verið í neysluvatnsmálum svæðisins. OR óskar eftir góðri samvinnu við íbúa vegna framkvæmdanna og mun kappkosta að óþægindi vegna þeirra verði sem minnst.