Lesa frétt
Árangur umfram áætlun
28.6.2012
Aðgerðaáætlun Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og eigenda (Planið) var kynnt 29. mars 2011. Í Planinu felast margháttaðar aðgerðir með það heildarmarkmið að bæta sjóðstreymi OR um 50 milljarða króna til ársloka 2016.
Árangur aðgerðanna eftir 1. ársfjórðung 2012 er umfram áætlun.
Framvinduskýrsla aðgerðaáætlunar OR og eigenda F1 2012 
Árangur Plansins á 1. ársfjórðungi 2012 nam um 2,1 milljarði króna og var 322 milljónum króna umfram áætlun. Auk þess reyndust ytri þættir hagstæðari en gert var ráð fyrir í forsendum sem nemur 34 milljónum króna.
Fyrir ársfjórðunginn er niðurstaðan því jákvæð um 356 milljónir króna og frá upphafi er niðurstaðan 1.563 milljónum betri en gert er ráð fyrir í Planinu.
Samdráttur fjárfestinga í veitukerfum er verulega umfram áætlanir en sala eigna á F1 2012 var undir áætlun. Hlutur OR í HS Veitum er í opinberu söluferli.