Lesa frétt

Orkuveitan tók þátt í málstofu um bætta orkunýtingu

25.6.2012
Síðastliðinn föstudag stóð Reykjavíkurborg fyrir málstofu um orkunotkun heimila. Markmið málstofunnar var að miðla hugmyndun og aðferðum til orkusparnaðar og til að vekja almenna umræðu um orkunotkun á Íslandi.
 
Málstofan var liður í Evrópskri orkuviku en 150 viðburðir áttu sér stað í orkuvikunni um alla Evrópu, viðburðir tileinkaðir vistvænni orku og hvernig auka má hlutfall vistvænnar orku og draga úr notkun á mengandi orkugjöfum eins og kolum og jarðolíu.
 
Eftirfarandi erindi voru flutt:
  • Svala Georgsdóttir, sjálfboðaliði fjallaði um Earth Hour eða Jarðarstundina sem haldin var í Reykjavík 31. mars.
  • Björn Marteinsson hjá Nýsköpunarmiðstöð fjallaði m.a. um hvernig byggingar halda hita á Íslandi.
  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson hjá Landvernd spurði: Skiptir orkusparnaður máli í landi endurnýjanlegrar orku?
  • Einar Örn Jónsson hjá Orkuveitu Reykjavíkur fjallaði um einfaldar leiðir til orkusparnaðar.
 
M.a. var fjallað var um kynninguna í fréttum RÚV og á Pressunni: