Lesa frétt
Sátt við Álftnesinga í fráveitudeilu
31.1.2012
Gengið hefur verið frá dómsátt í deilu OR og Sveitarfélagsins Álftaness vegna fráveitumála.
Með samningi dags. 25. janúar 2007 eignaðist Orkuveita Reykjavíkur fráveitu Álftaness. Í fjárhagsþrengingum Álftnesinga árið 2009 urðu vanskil á greiðslum sveitarfélagsins til OR, samtals að fjárhæð um 90 milljónir króna í árslok 2010. Sveitarfélagið innheimti fráveitugjald af íbúum sem þó rann ekki til Orkuveitu Reykjavíkur. Í kjölfarið rifti Orkuveitan samningi um kaup á veitunni og hætti afskiptum af rekstri hennar í ársbyrjun 2011.
Sveitarfélagið véfengdi rétt OR til riftunar og rataði málið þá fyrir dómstóla. Dómsátt hefur nú verið gerð í riftunarmálinu sem felur í sér að Álftanes greiddi OR 30 mkr. 11. desember 2011 og mun greiða 30 mkr. 15. maí 2012 eða 60 milljónir króna alls og eignast þar með fráveituna að nýju. Orkuveitan þarf því að bera afskrift á kröfu sinni á hendur Álftanesi sem nemur um 30%. Það er sambærilegt afskriftarhlutfall og aðrir kröfuhafar hafa samþykkt við fjárhagslega endurskipulagningu sveitarfélagsins á Álftanesi.
Það er mat Orkuveitunnar að dómsáttin sé fyrirtækinu í hag. Miklar fjárfestingar eru framundan í fráveitu Álftaness á næstu árum sem að óbreyttu hefðu leitt til tapreksturs á veitunni um langa framtíð.