Lesa frétt

Segulsvið á Íslandi svipað og í Svíþjóð

2.9.2010 Geislavarnir ríkisins og Brunamálastofnun hafa nýlega lokið rannsókn á segulsviði í rúmlega 130 íbúðum. Niðurstöður benda til að segulsviðið í íbúðum á Íslandi sé svipað og í Svíþjóð en frágangur raflagna á Íslandi og í Svíþjóð er sambærilegur.

Frá þessu er greint á vef Brunamálastofnunar.

Með hliðsjón af niðurstöðum rannsóknarinnar telja Geislavarnir ríkisins að ekki séu, að svo stöddu, veigamikil rök fyrir umfangsmeiri rannsóknum á styrk segulsviðs í íbúðarhúsnæði á Íslandi.

Smelltu hér til að lesa skýrslu um segulsvið í íbúðarhúsum á Íslandi