Lesa frétt

Stærri strókar úr Hellisheiðinni fram að Jónsmessu

4.6.2010 Sunnudaginn 6. júní hefst liðlega tveggja vikna skipulögð rekstrarstöðvun í Hellisheiðarvirkjun. Ástæða hennar eru breytingar á gufuveitu virkjunarinnar, m.a. vegna tenginga við nýja varmastöð sem tekin verður í notkun undir lok ársins. Gufa frá virkjunarsvæðinu verður meiri meðan á rekstrarstöðvuninni stendur og ferðafólk er beðið að sýna sérstaka aðgát.

Hellisheiðarvirkjun fær gufu frá tugum borhola í grennd við virkjunina. Við það að allar holurnar eru aftengdar virkjuninni eykst gufustreymi frá þeim sjálfum. Sýnileiki gufunnar veltur talsvert á lofthita og öðrum veðurskilyrðum, en reikna má með því að gufustrókarnir verði mun sýnilegri frá höfuðborgarsvæðinu en fram til þessa.

Umferð um framkvæmdasvæði sætir takmörkunum af öryggisástæðum. Meðan á rekstrarstöðvuninni stendur er rétt að benda á þrjár hættur sem henni fylgja.
  • Umferð vinnuvéla verður óvenjulega mikil um allt framkvæmdasvæðið.
  • Blásandi borholur teljast til framkvæmdasvæðis og er almenn umferð við þær ekki leyfð. Sumar borholur eru vatnsmiklar og í blæstri rennur sjóðheitt vatn í opnar svelgholur. Settir eru upp varúðarborðar en þær geta þó verið varasamar.
  • Gufu frá blásandi borholum getur slegið niður í grennd við þær og skyggni orðið mjög lítið, eins og í niðaþoku.

Orkuveita Reykjavíkur leitast við að hafa landareignir fyrirtækisins á Hengilssvæðinu sem aðgengilegastar og hefur í því skyni lagt á annað hundrað kílómetra af göngustígum um svæðið. Leitast verður við að halda þeim leiðum opnum sem fyrirtæki í ferðaþjónustu nýta sér á svæðinu. Ferðafólki sem hyggst ferðast um svæðið á eigin vegum er bent á leita upplýsinga í gestaskála Hellisheiðarvirkjunar áður en lagt er af stað.

Hellisheiðarvirkjun var tekin í notkun haustið 2006 og hafa nýir áfangar uppbyggingarinnar bæst við jafnt og þétt síðan. Framundan eru tveir áfangar. Undir lok ársins hefst framleiðsla á heitu vatni í virkjuninni og verður því veitt um Hellisheiðaræðina til höfuðborgarsvæðisins. Vegna tenginga varmastöðvarinnar við gufuveitu virkjunarsvæðisins þarf að stöðva alla framleiðslu í virkjuninni. Rekstrarstöðvunin er einnig nýtt til reglubundins eftirlits og viðhalds á þeim vélum sem þegar eru í rekstri. Þá verða einnig gerðar breytingar á gufuveitunni vegna tenginga við næsta áfanga raforkuframleiðslunnar, sem tekinn verður í notkun um mitt ár 2011. Hléið verður einnig nýtt til breytinga á stjórnbúnaði virkjunarinnar.

Áætlað er að rekstrarstöðvunin standi til 24. júní. OR aflar viðskiptavinum sínum raforku frá öðrum framleiðendum meðan á stöðvuninni stendur.